Fréttir

Alcoa og Alcan saman í ker?

Alcoa mun leggja fram tilboð í Alcan á morgun. Tilkynnt hefur verið um tilboðsverðið en það munu vera 73,25 bandaríkjadalir á hlut eða sem samsvarar 33 milljörðum dala eða 2.100 milljarða króna fyrir fyrirtækið.

Miðað við síðustu ársreikninga beggja fyrirtækjanna yrði ársvelta sameinaðs fyrirtækis um 54 milljarðar bandaríkjadala og hagnaður fyrir afskriftir og skatta 9,5 milljarðar dala. Framleiðslugetan yrði nærri 30 milljónir tonna af áli og hjá því myndu starfa 188 þúsund manns í 67 löndum.


Ýmsar getgátur hafa verið á lofti í grasrótinni á undanförnum misserum um hvað gæti gerst ef að álver á Íslandi myndu lenda i eign eins aðila og þær hættur sem leynast raunverulega í stóriðjustefnunni fyrir Ísland. Þetta útspil álrisanna ætti að gefa hugarfluginu byr undir báða vængi því kannski er það ekkert fjarri lagi að næsta skrefið verði að Rusal eða Rio Tinto eignist allan pakkann og fái Íslenska orku á silfurbakka þaðan í frá og okkur sem þjónustuaðila við sig til frambúðar.

Víst er að hagsmunir álfyrirtækja eru ekki sniðnir til að gleðja smáríki og skapa störf á norðurhjara og kannski tími til kominn að við Íslendingar gerum okkur grein fyrir smæð okkar og umkomuleysi í veröldinni og högum okkur í samræmi við það að við viljum halda sjálfstæði okkar til frambúðar.

Myndin er tekin af byggingu Fjarðaráls í Reyðarfirði þ. 22.08.2006. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.




Einkunn

Deildu með vinum
Flokkar:

Orð í belg

Gunna Tryggva - þriðjudagur 8. maí, 2007 klukkan 00:54:49

Og þá kemur það, þarf ekki miklar spádómsgáfur til. Sjá greinina „Baráttan um Alcan kann að vera í uppsigilingu“ sem var að detta inn á mbl.is. http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frett.html?nid=1268298

Þórður - þriðjudagur 8. maí, 2007 klukkan 07:07:08

Nú er varla meiri grundvöllur fyrir þeim "trúnaði" sem er haldinn um verð á raforku til þessara durga, amk ekki með þeim rökum að það sé til að tryggja "hátt" raforkuverð. Glæsilegt ef Rio Tinto verður okkar helsti lénsherra.

Elísabet Vald - þriðjudagur 8. maí, 2007 klukkan 08:44:53

Það er alltaf auðvelt að vera vitur eftir á, en nú þurfum við að taka á öllu okkar til að vera vitur fyrirfram.

Gunna Tryggva - þriðjudagur 8. maí, 2007 klukkan 10:43:23

Mikið rétt, forsíðufrétt Moggans í morgun væri skemmtiefni ef að iðnaðarráðherra væir að segja brandara en ég held að hann meini þetta. http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1268311
síðan er náttúrulega inni í blaðinu talað um fjandsamlega yfirtöku, hver er að gera grín að ráðherranum?

4 orð í belg

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Tengt lesefni:

Áliðnaður: Fyrirtæki [41]

: Áliðnaður [52]

Nýleg orð í belg

Eldhúsið - Hreinlætisvörur
Sæl, með sítrónusafa!
Guðrún Tryggvadóttir 17. 05. 2012 00:29:
Eldhúsið - Hreinlætisvörur
Hvernig fæ ég glerglös og aðrar glervörur (t.d. kristal) til að verða glansandi (með náttúrulegum ...
AP 16. 05. 2012 23:42:
Gleymdu klórnum og öðrum ónáttúrulegum hreinsiefnum!
Bórax hefur fengist í Handverkshúsinu í Bolholti í Reykjavík (notað til að hreinsa silfur og ...
Auður Páls 16. 05. 2012 23:39:
Græðgin í auðlindir landsins
Ein stór spurning varðandi leyfisveitingu UST á útiræktun (og almenna ræktun, innanhús líka þvæi ekki ...
Dominique 13. 05. 2012 12:41:
Ráðstefna um erfðabreytta ræktun, sleppingu og dreifingu
Spurning hvort fólk sem hefur kynnt sér neikvæðu hlíðar af erfðatækni ættu að fá að ...
Morten Lange 12. 05. 2012 02:03:
Seljum Ísland hvað sem það kostar
Einar Benediktsson um Kínamál: http://visir.is/kinamal-/article/2012705099999
Guðrún Tryggvadóttir 9. 05. 2012 10:04:
Fjölmennt á málþingi Landverndar og Eldvatna - samtaka um náttúruvernd í Skaftárhreppi
Við munum þurfa að berjast og berjast. Griðungar stóriðju munu heimta orku án afláts og ...
Árni Gunnarsson 6. 05. 2012 13:18:
Landneminn alaskalúpína
Sæl Gígja. Ef settar eru niður nægilega háar trjáplöntur í lúpínubreiðurnar,þá vaxa þær vel og ...
Eyjólfur Guðmundsson 2. 05. 2012 09:35:
Samtök áhugafólks um umhverfi og vellíðan í burðarliðnum
Nú veit ég ekki. Reyndu t.d. Félag hjúkrunarfræðinga!
Guðrún Tryggvadóttir 1. 05. 2012 12:08:

Fréttir frá: