Fréttir

Aðalfundur samtaka um bíllausan lífsstíl

Samtök um bíllausan lífsstíl er hópur fólks sem hefur að sameiginlegu áhugamáli að vinna að því að gera bíllausan lífsstíl á höfuðborgarsvæðinu að vænlegri kosti en nú er. Samtökin halda aðalfund sinn í kvöld kl. 20:00 á efri hæð Sólon.

Stjórnarmeðlimir munu kynna starfsemi félagsins í vetur og þau verkefni sem nú eru á döfinni, en auk þess verða þrjú einkar áhugaverð erindi:
  1. Sesselja Traustadóttir mun flytja erindið: "Hjólafæri á göturnar".
  2. Þorstein R. Hermannsson höfundur samgöngustyrkja Mannvits mun kynna verkefnið.
  3. Katrín Anna Lund, mannfræðingur og lektor við HÍ mun kynna rannsóknir sínar á samskiptum farþega í Belfast og heimfæra á Reykjavík.

Sjá vef samtakanna billaus.is.

Sjá nánar um Samtök um bíllausan lífsstíl:


Samtök um bíllausan lífsstíl er hópur fólks sem hefur að sameiginlegu áhugamáli að vinna að því að gera bíllausan lífsstíl á höfuðborgarsvæðinu að vænlegri kosti en nú er.

Tilgangurinn er margþættur, allt frá því að hafa jákvæð áhrif á nærumhverfið og draga úr útblástursmengun og yfir það að skapa líflegra og mannvænna borgarumhverfi.

Í hópnum er fólk sem bæði lifir bíllausum lífsstíl og þeir sem gjarnan vildu gera það, ef aðstæður til þess væru betri.

Hópurinn er þverpólitískur, og leggur því meiri áherslu á að berjast fyrir réttindum þeirra er kjósa sér bíllausan lífsstíl fremur en sértækum og hugsanlega umdeilanlegum lausnum.

Hópurinn mun því berjast fyrir eftirfarandi atriðum:
  • að borin sé virðing fyrir almannarými á borð við gangstéttir og torg, og að sektir fyrir ólöglega lögðum faratækjum séu sambærilegar á við það sem gerist í nágrannaborgum og að sektað sé allan tíma sólarhringsins,
  • að gætt þess verði að stofnæðar trufli sem minnst nærliggjandi byggð,
  • að draga úr niðurgreiðslum til handa bílandi á formi gjaldfrjálsra bílastæða við stofnanir, verslanir og fyrirtæki, óbeinnar gjaldtöku af umferðarmannvirkjum og hverju því sem dregur úr samkeppnishæfni annarra valkosta við einkabílinn,
  • að hvetja til þess að lagðir séu göngustígar og hjólabrautir með sambærilegum metnaði og götur fyrir bíla,
  • að umferðaræðar verði skipulagðar sem breiðstræti ekki síður en hraðbrautir þar sem við á,
  • að almenningssamgöngur fái sérakreinar á stofnæðum þar sem hætta er á biðraðamyndun og töfum,
  • að lögð verði enn meiri áhersla á skjólmyndun með trjágróðri en nú er.


Hópurinn mun einnig kynna kosti þess að lifa bíllausum lífsstíl fyrir þá sem ekki gera það í dag, hvaða áhrif það hefur á líf þess og nærumhverfi og hvetja fólk til að breyta um lífsstíl eftir fremsta megni.

Grafík: Bílar, barn og maður. Guðrún Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir.



Tengdir viðburðir


Aðalfundur bílleysingja
28. maí. 2009 20:00
NA - - 000 Óstaðsett


Einkunn

Deildu með vinum
Flokkar:
0 orð í belg

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Tengt lesefni:

Bílskúrinn: Reiðhjól [45]

Félög og samtök: Hagsmunasamtök [70]

Samfélagið: Félög og samtök [335]

Samgöngur: Almennings [24]

Samgöngur: Hjólreiðar [58]

Samgöngur: Vistvæn farartæki [88]

Grænar síður:

Reiðhjól [3]

Hagsmunasamtök [20]

Félög og samtök [63]

Almennings [3]

Hjólreiðar [16]

Vistvæn farartæki [15]

Nýleg orð í belg

Eldhúsið - Hreinlætisvörur
Sæl, með sítrónusafa!
Guðrún Tryggvadóttir 17. 05. 2012 00:29:
Eldhúsið - Hreinlætisvörur
Hvernig fæ ég glerglös og aðrar glervörur (t.d. kristal) til að verða glansandi (með náttúrulegum ...
AP 16. 05. 2012 23:42:
Gleymdu klórnum og öðrum ónáttúrulegum hreinsiefnum!
Bórax hefur fengist í Handverkshúsinu í Bolholti í Reykjavík (notað til að hreinsa silfur og ...
Auður Páls 16. 05. 2012 23:39:
Græðgin í auðlindir landsins
Ein stór spurning varðandi leyfisveitingu UST á útiræktun (og almenna ræktun, innanhús líka þvæi ekki ...
Dominique 13. 05. 2012 12:41:
Ráðstefna um erfðabreytta ræktun, sleppingu og dreifingu
Spurning hvort fólk sem hefur kynnt sér neikvæðu hlíðar af erfðatækni ættu að fá að ...
Morten Lange 12. 05. 2012 02:03:
Seljum Ísland hvað sem það kostar
Einar Benediktsson um Kínamál: http://visir.is/kinamal-/article/2012705099999
Guðrún Tryggvadóttir 9. 05. 2012 10:04:
Fjölmennt á málþingi Landverndar og Eldvatna - samtaka um náttúruvernd í Skaftárhreppi
Við munum þurfa að berjast og berjast. Griðungar stóriðju munu heimta orku án afláts og ...
Árni Gunnarsson 6. 05. 2012 13:18:
Landneminn alaskalúpína
Sæl Gígja. Ef settar eru niður nægilega háar trjáplöntur í lúpínubreiðurnar,þá vaxa þær vel og ...
Eyjólfur Guðmundsson 2. 05. 2012 09:35:
Samtök áhugafólks um umhverfi og vellíðan í burðarliðnum
Nú veit ég ekki. Reyndu t.d. Félag hjúkrunarfræðinga!
Guðrún Tryggvadóttir 1. 05. 2012 12:08:

Fréttir frá: