Fréttir

Að ferðast innanlands

Af hverju að fara langt þegar þú getur notið góðs sumarfrís í næsta nágrenni. Alltof margir ferðast um hálfan hnöttinn en gleyma að ferðast um sitt eigið land. Útivera er ein skemmtilegasta leiðin til að halda sér og fjölskyldu sinni heilbrigðri og léttri í lund. Ferðalög þurfa ekki að vara lengi en það getur verið yndisleg upplifun fyrir fjölskylduna að komast aðeins út fyrir borgina eða bæinn og út í náttúruna.Keyrið varlega og njótið þess að skoða út um gluggan það sem fyrir augum ber.

Áður en þið leggið af stað er ráðlagt að gera lista yfir hluti sem þarf að taka með, staði sem á að sjá o.fl. Best er að reyna að takmarka hluti sem þið takið með. Ráðlegt er að notast aðeins við fjölnota umbúðir fyrir matvæli og hluti. Ef að vaska þarf upp eða þvo föt úti í náttúrunni er best að notast við umhverfismerkt þvottaefni og uppþvottalög. Mikilvægt er að reyna að þvo ekki mikið upp úr ám eða lækjum, hægt er að notast við vaska á tjaldstæðum. Mikilvægt er að sýna náttúrunni virðingu, í því felst að skilja ekki eftir rusl á drasl á jörðinni, best er að taka það heldur með ykkur í bílinn og henda því svo í næsta ruslagám. Einnig er mikilvæg að skilja náttúruna við sig eins og maður kom að henni. Í ferðalaginu er sniðugt að reyna að nota bílinn sem minnst, hægt er að fara í gönguferðir eða jafnvel taka reiðhjól með í ferðalagið. Ef að fara á í gönguferðir er best að hafa í huga að ganga eftir merktum gönguleiðum, annað getur verið slæmt fyrir jarðveginn, þú gætir lent inná einkalóð eða lent í ógöngum eða hættu. Sama á við um bíla. Mikilvægt er að keyra aldrei utanvega, það er vanvirðing við náttúruna, hjólför geta rist jarðveginn djúpt og eyðilagt gróður.

Myndin er af Daníel Tryggva Guðrúnarsyni og Vilhjálmi Hjálmarssyni að baða sig í heitum læk í Reykjadal. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.





Einkunn

Deildu með vinum
Flokkar:
0 orð í belg

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Tengt lesefni:

Bílskúrinn: Ferðalög [26]

Húsráð: Umhverfisvæn sumarfrí [3]

Landið: Ferðalög [34]

Nýleg orð í belg

Eldhúsið - Hreinlætisvörur
Sæl, með sítrónusafa!
Guðrún Tryggvadóttir 17. 05. 2012 00:29:
Eldhúsið - Hreinlætisvörur
Hvernig fæ ég glerglös og aðrar glervörur (t.d. kristal) til að verða glansandi (með náttúrulegum ...
AP 16. 05. 2012 23:42:
Gleymdu klórnum og öðrum ónáttúrulegum hreinsiefnum!
Bórax hefur fengist í Handverkshúsinu í Bolholti í Reykjavík (notað til að hreinsa silfur og ...
Auður Páls 16. 05. 2012 23:39:
Græðgin í auðlindir landsins
Ein stór spurning varðandi leyfisveitingu UST á útiræktun (og almenna ræktun, innanhús líka þvæi ekki ...
Dominique 13. 05. 2012 12:41:
Ráðstefna um erfðabreytta ræktun, sleppingu og dreifingu
Spurning hvort fólk sem hefur kynnt sér neikvæðu hlíðar af erfðatækni ættu að fá að ...
Morten Lange 12. 05. 2012 02:03:
Seljum Ísland hvað sem það kostar
Einar Benediktsson um Kínamál: http://visir.is/kinamal-/article/2012705099999
Guðrún Tryggvadóttir 9. 05. 2012 10:04:
Fjölmennt á málþingi Landverndar og Eldvatna - samtaka um náttúruvernd í Skaftárhreppi
Við munum þurfa að berjast og berjast. Griðungar stóriðju munu heimta orku án afláts og ...
Árni Gunnarsson 6. 05. 2012 13:18:
Landneminn alaskalúpína
Sæl Gígja. Ef settar eru niður nægilega háar trjáplöntur í lúpínubreiðurnar,þá vaxa þær vel og ...
Eyjólfur Guðmundsson 2. 05. 2012 09:35:
Samtök áhugafólks um umhverfi og vellíðan í burðarliðnum
Nú veit ég ekki. Reyndu t.d. Félag hjúkrunarfræðinga!
Guðrún Tryggvadóttir 1. 05. 2012 12:08:

Fréttir frá: