Fréttir
Opið bréf til Umhverfisstofnunar og umhverfisráðherra
Frá Kristínu Völu Ragnarsdóttur, forseta Verkfræði- og náttúruvísindasviðs HÍ, vegna umsóknar um ræktun genbreytts byggs úti í náttúrunniFyrst af öllu við ég taka fram að ég er jarðfræðingur fá Háskóla Íslands með masters og doktórspróf í jarðefnafræði frá Bandaríkjunum og hef 25 ára reynslu í rannsóknum sem tengjast umhverfinu og umhverfismengun. Sem prófessor við Háskólann í Bristol í Engladi í 20 ár vann ég við kennslu og/eða rannsóknir innan jarðefnafræði, jarðvegsfræði, umvherfismats, umhverfislögfræði, umhverfiseiturefnafræði, sjálfbærni og sjálfbærri þróun. Ég tel mig því hafa mjög góða þekkingu til að meta þessa umsókn og hef eftirfarandi að segja:
Tímasetning og tími til að skila inn athugasemdum
Samkvæmt íslenskum lögum þarf að veita 6 vikna frest fyrir almenning til að kynna sér málin og gera athugasemdir. Hér var einungis gefin ein vika.
Umsóknin
Einungis er almenningi gefinn úrdráttur úr umsókninni, þannig að ekki er unnt að meta þær grunnrannsóknir sem unnar hafa verið. Þessi umsókn á að vera opinber og gagnsæ, annars lítur út fyrir að þessar framkvæmdir hafi eitthvað að fela.
Umhverfisáhættumat (environmental risk assessment)
Samkvæmt Evrópusambandslögum þarf að tilkynna og fá leyfi á notkun á genbreyttum lífverum út í náttúrunni (Directive 2001/18/EC). Samkvæmt sömu lögum þarf markaðssetning á genbreyttum lífverum að vera undir skilyrtum sýnatökum og eftirliti. Þegar verið er að meta hættu fyrir náttúruna og umhverfið, er athugað hvort lífverurnar geta breiðst út í umhverfið og hvaða áhrif þau geti haft. Lögin skilja að tilraunanotkun genbreyttra lífvera (tímabundið og á takmörkuðu svæði) og notkun til framleiðslu (efni sett á markað). Til að vernda náttúruna og umhverfið frá hættum genbreytinga, þarf að gera umhverfisáhættumat. Þetta mat er gert af þeim sem rækta genbreyttu lífverurnar og gagn þess byggist á því hve góð gögnin eru. Yfirvöld fara síðan yfir matið. Þau gögn sem eru lögð hér fram eru mjög takmörkuð og leyfa því ekki álitsgerð hvorki almennings né sérfræðinga sem ekki starfa með umfjöllunarnefndinni.
Möguleg hætta á að hleypa genbreyttum lífverum út í umhverfið
Genbreyttar plöntur hafa verið ræktaðar síðan 1995. Framleiðsla þeirra byggist á að bæta við DNA frá annarri lífveru og komast þannig fram hjá stjórnkerfi frumanna. Það er hægt að athuga áhrif sumra mólíkúlanna sem myndast vegna genbreytinganna, en alhiða mat er ekki mögulegt. Genbreyttar lífverur margfaldast og breiða genum sínum út um umhverfið. Það er því ekki unnt að safna þeim saman aftur og eru því ólík öðrum mengunarefnum sem er hleypt út í umhverfið, t.d. iðnaðarmengunarefnum, skordýraeitri og lyfjum.
Nýlegar rannsóknir sýna til dæmis að það sé mögulegt að býflugur séu að hverfa á þeim svæðum sem genbreyttar lífverur eru ræktaðar, vegna þess að þær verða ófrjóar.
Möguleg áhrif
Umhverfisáhættumat athugar eiginleika genbreyttu lífveranna, mögulegar hættur og áhrif á heilsu manna og umhvefisins. Skoða þarf bein og óbein áhrif lífveranna, áhrif sem verða strax og seinkunaráhrif. Alvarleg áhrif geta orðið vegna útbreyðslu genbreyttu lífveranna í umhverfinu, aðrar lífverur forða sér, upptaka genbreyttrs efnis í aðrar lífverur (blöndun vegna víxlunar), svipgerðaróstöðugleika og genóstöðugleika, samspil við aðrar lífverur (sem eru ekki í tilrauninni) og breyttri landstjórn. Lögin segja einnig að athuga þurfi samanlögð langtímaáhrif sem genbreyttar lífverur hafa á flóru og fánu, frjósemi jarðvegs, rotnun lífúrgangs í jarðveginum, fæðukeðjuna, fjölbreytni lífvera, heilsu dýra og mótstöðu á fúkkalyfjum. Þessi áhrif hafa ekki verið könnuð.
Það þarf að gera nákvæma athugun á gerlum jarðvegsins – hvaða protein framleiða þeir og hvaða eiginleika hafa þeir (frjósemi, ófrjósemi, ásókn meindýra og sýking). Það þarf að athuga hvort genin breyti gerlum í jarðvegi. Þessar athuganir þarf að gera um árabil – til að kanna breytingar á míkróvistkerfinu.
Hafa krabbameinsáhrif genbreytta byggsins verið athuguð? Hvað með ofnæmisáhrif?
Framleiðsla á vaxtarþátum eins og IGF-1 og áhrif þeirra á lífríkið í kring hefur ekki verið kannað. Hvaða áhfrif hafa þessir þættir á skordýr, fugla (ef þeir komast í gegnum netin) og bakteríur? Hefur verið athugað hvort genbreytt bygg víxlast with melgresi? Fyrirhugað er að plægja niður stráið strax að aflokinni uppskeru – hvaða áhrif hefur það á skordýr og gerla í jarðveginum? Eitthvað af korni verður einnig eftir á tilraunaakrinum þegar uppskeru er lokið og það er mögulegt að fuglar, mþs og e.t.v. smádýr komist í þetta korn í litlum mæli og éti það. Þessi mögulegu áhrif hafa ekki verið könnuð. Athuga þarf hegðun og fjölda skordýra – hefur það verið gert?
Það þarf að kanna áhrif nýrra innrásartegunda. Vistkerfi sem fer úr böndunum er ekki unnt að snúa til baka. Slík krísa yrði verri en bankahrunið 2008.
Hve langt geta fræ og genbreytt efni hreifst á vindasömu Suðurlandi? Það er þekkt að sandrok frá Sahara hefur áhrif á lífríki Karabíahafsins (bæði sandurinn sjálfur og gerlar sem berast með sandkornunum). Sandur og frjókorn berast upp á jökla Íslands. Það er því fáránlegt að segja að þau geti ekki borist nema nokkra metra með vindi. Ætibyggrækt á Rangárvöllum (og víðar) getur því verið í hættu. Þetta þarf að kanna betur.
Gera þarf útiathuganir og viðeigandi rannsóknir:
Þróa þarf DNA PCR (polymerized chain reaction). Einnig þarf að þróa “strip test” – til að athuga á auðveldan hátt hvort breytingar hafi átt sér stað í lífríkinu
Gera þarf athuganir á genmengunaráhrifum um árabil. Ég var að heyra í dag að gerðar hafa verið útiathuganir á Hvanneyri. Hve langar voru tilraunirnar á Hvanneyri? Hvað var athugað annað en víxlun við ógenbreytt bygg?
Öryggi tilraunareits
Tilraunir þurfa að vera undir ströngu öryggiseftirliti svo að ekki sé unnt að stela og/eða neyta plantnanna. Hvaða ráðstafanir hafa verið gerðar á Gunnarsholti?
Hefur verið ákveðið og áætlað hvað eigi að gera í stórviðri? Eyða plöntum áður en veður skellur á? Eitthvað annað?
Kostnaður á rannsóknum
Hefur verið stofnaður sjóður svo að þriðji aðili geti athugað umhverfið – í nokkur ár?
Hvaða tryggingafélag tryggir framkvæmdirnar til þess að það verði hægt að leitast við að fara aftur til upprunalegs kerfis, ef stóráhrif verða á vistkerfinu?
Stöðugleiki genbreyttra plantna og gena
Það þarf að athuga transgenin nákvæmlega. Genbreyttar plöntur skaddast með einu nýju geni – en hvað með fjögur? Er búið að kanna hvort próteinin sem framleiða á séu stöðug í langan tíma?
Viðvörunarlögmálið (precautionary principle)
Efrópusambandið virðir viðvörunarlögmálið í stefnu sinni fyrir neytendavernd, heilsu almennings, matvælaöryggi, sjálfbærni og umhverfisvernd. Þetta lögmál var stuðst við í lögunum (Directive 2001/18/EC) og á einnig að vera undirstaða lagaframfylgni. Hér eru svo litlar upplýsingar að viðvörunarlögmálið á að vera í hávegum haft og ræktun ekki leyfð á útireit í Gunnarsholti.
Áhrif á matvöru og fóður
Á Íslandi er matvara ekki enn merkt þegar um genbreyttar lífverur er að ræða. Þess vegna verða matvörur frá bændabýlum í kringum tilraunareytinn grunsamlegar og hætta er á að fólk vilji ekki neyta þeirra. Vegna þess að gögn eru ekki nægileg er möguleiki á mengun matvæla og fóðurs í nágrenni tilraunareitanna.
ESB
ESB hefur aldrei leyft útiræktun erfðabreyttra lyfja- eða iðnaðarplantna til framleiðslu fyrir markað. Evrópusambandið leyfir aðeins ræktun einnar tegundar erfðabreyttra plantna til framleiðslu fyrir markað. Þett er fóður- og matjurtin Mon 810 maís, en nú hefur Austurríki, Frakkland, Grikkland, Holland, Sviss, Ungverjaland og Þýskaland bannað ræktun þess.
Niðurstaða
Það er mat margra að einungis eigi að genbreyta plöntutegundum sem ekki eru notaðar til manneldis eða fóðrunar, innandyra í öryggishúsum og undir ströngu opinberu eftirliti. Hér er ég sammála, en gæti breytt um skoðun ef nákvæmt umhverfismat sýnir fram á að viðvörunarlögmálið var óþarft. Í landi þar sem orka og landsvæði eru víðtæk er unnt að halda áfram ræktun innandyra.
Ég tel mig sem náttúrufræðing bara ábyrgð á þeirri náttúru sem við skilum til komandi kynslóða og mæli því gegn ræktun genbreytts byggs úti í náttúrunni á Gunnarsholti á meðan umhverfisáhættumat hefur ekki verið unnið á viðunandi máta.
Reykjavík 26. maí 2009
Sign.
26. maí. 2009 22:16
Uppruni:
til baka
Sjá tengt lesefni og tilvísanir í Grænar síður hér til hægri.
- Samfélagið
- Tækni
- Umhverfið
Orð í belg
Tengt lesefni:
Samfélagið: Umhverfismál [1009]
Tækni: Erfðatækni [91]
Umhverfið: Öryggi og vá [95]
Grænar síður:
Umhverfismál [25]
Erfðatækni [2]

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal
| sun | mán | þri | mið | fim | fös | lau | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 29 | 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | 05 | may |
| 06 | 07 | 08 | 09 | 10 | 11 | 12 | may |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | may |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | may |
| 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 01 | 02 | jun |
| 03 | 04 | 05 | 06 | 07 | 08 | 09 | jun |
| 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | jun |
| 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | jun |
| 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | jun |
monday 30. april
- 17:15
Hvenær gýs Hekla?
Sjá grein: Hvenær gýs Hekla? Innviðir eldfjalls og jarðskorpuhreyfingar - 23:59
Frestur til að sækja um styrk úr Umhverfissjóði Landsbankans rennur út
Sjá grein: Umhverfisstyrkir Landsbankans auglýstir í annað sinn
wednesday 02. may
- 12:10
Má bjóða þér vatn?
Sjá grein: Má bjóða þér vatn?
sunday 06. may
- 11:00
Sunnudagsganga um Sveifluháls
Sjá grein: Náttúruverndarfélag Suðvesturlands býður til sunnudagsgöngu á Sveifluháls - 11:00
Fuglablik í Grasagarðinum í Reykjavík
Sjá grein: Fuglablik í Grasagarðinum - ljósmyndasýning og fuglaganga
monday 07. may
- 20:00
Queen of the Sun sýnd í Norræna húsinu
Sjá grein: Samtök lífrænna neytenda bjóða á Drottningu sólarinnar
friday 11. may
- 13:00
Málþing og raflínur og strengi
Sjá grein: Málþing um raflínur og strengi - 13:00
Samráðsþing MAST - Áhættugreining og eftirlit
Sjá grein: Samráðsþing MAST - Áhættugreining og eftirlit
saturday 12. may
- 10:00
Aðalfundur Landverndar
Sjá grein: Aðalfundur Landverndar
tuesday 15. may
- 13:00
Erfðabreytt ræktun, slepping og dreifing
Sjá grein: Ráðstefna um erfðabreytta ræktun, sleppingu og dreifingu - 20:00
Náttúran, auðlindirnar og nýja stjórnarskráin
Sjá grein: Borgarafundur um náttúruvernd og auðlindanýtingu í stjórnarskrá
monday 21. may
- 13:00
Málþing um sjálfbæra ferðamennsku og náttúruvernd á háhitasvæðum
Sjá grein: Sjálfbær ferðamennska og náttúruvernd á háhitasvæðum
wednesday 30. may
- 13:00
Málþing um Árósarsamninginn
Sjá grein: Málþing um Árósasamninginn 30. maí
thursday 31. may
- 09:00
Ráðstefna um útinám og náttúrleg leiksvæði
Sjá grein: Ráðstefna um útinám og náttúruleg leiksvæði
monday 04. june
- 08:30
Soils Governance and Society
Sjá grein: Alþjóðleg ráðstefna um sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda

Færð á vegum
Aðalleiðir eru nú greiðfærar að heita má um allt land. Þó eru hálkublettir á Dettifossvegi og þungfært á Mjóafjarðarheiði.Framkvæmdir
Unnið er við breytingar á Suðurlandsvegi milli Bláfjallavegar og Litlu kaffistofunnar. Akbrautin í austur verður breikkuð og lagfærð og gengið frá við Litlu kaffistofuna. Verklok eru áætluð í júlí. Vegfarendur eru beðnir að aka varlega um vinnusvæðið og virða merkingar.Hálendisvegir
Á hálendinu er allur akstur víða bannaður vegna aurbleytu og hættu á skemmdum.Þungatakmarkanir
Þungatakmarkanir eru á örfáum vegum.Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.Sjá staðsetningu hreindýra hér.
Upplýsingar birtar með fyrirvara um heimild og tæknilegt aðgengi að upplýsingum
Heimild: Vegagerðin
Nýleg orð í belg
Hvernig fæ ég glerglös og aðrar glervörur (t.d. kristal) til að verða glansandi (með náttúrulegum ...
AP 16. 05. 2012 23:42:
Bórax hefur fengist í Handverkshúsinu í Bolholti í Reykjavík (notað til að hreinsa silfur og ...
Auður Páls 16. 05. 2012 23:39:
Ein stór spurning varðandi leyfisveitingu UST á útiræktun (og almenna ræktun, innanhús líka þvæi ekki ...
Dominique 13. 05. 2012 12:41:
Spurning hvort fólk sem hefur kynnt sér neikvæðu hlíðar af erfðatækni ættu að fá að ...
Morten Lange 12. 05. 2012 02:03:
Einar Benediktsson um Kínamál: http://visir.is/kinamal-/article/2012705099999
Guðrún Tryggvadóttir 9. 05. 2012 10:04:
Við munum þurfa að berjast og berjast. Griðungar stóriðju munu heimta orku án afláts og ...
Árni Gunnarsson 6. 05. 2012 13:18:
Sæl Gígja. Ef settar eru niður nægilega háar trjáplöntur í lúpínubreiðurnar,þá vaxa þær vel og ...
Eyjólfur Guðmundsson 2. 05. 2012 09:35:
Nú veit ég ekki. Reyndu t.d. Félag hjúkrunarfræðinga!
Guðrún Tryggvadóttir 1. 05. 2012 12:08:
Fréttir frá:
Samtökum lífrænna neytenda
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Náttúrufræðistofnun
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Umhverfisráðuneytinu
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Umhverfisstofnun
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Sorpu
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Sólheimum
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Loftslag.is
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Saving Iceland
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
RSS fréttir frá Náttúran.is má nálgast á feed://natturan.is/feeds/









Gunnar L. - miðvikudagur 27. maí, 2009 klukkan 02:30:02
Takk fyrir góða og þarfa grein!
Petra - föstudagur 29. maí, 2009 klukkan 06:34:56
Frábær grein - það þarf að koma henni sem víðast.
Anna M. - föstudagur 29. maí, 2009 klukkan 14:19:21
Orð í tím töluð. Er ekki hægt að stoppa þetta strax!
Einar Bergmundur - föstudagur 29. maí, 2009 klukkan 18:18:28
UST hefur framlengt frest vegna athugasemda til 12. júní n.k.
Vonandi tekst að koma af stað málefnalegri og upplýsandi umræðu fyrir þann tíma. Eins eru ný lög um efnið til meðferðar á þingi og var mælt fyrir þeim í dag.
Eggert. - sunnudagur 7. júní, 2009 klukkan 23:03:36
Þessi grein er full af rangfærslum mæli með að fólk kynni sér hina hliðina.
http://apalsson.blog.is/blog/apalsson/entry/890378/
Sigríður - miðvikudagur 1. desember, 2010 klukkan 00:22:36
Bréf skrifað í göfugum tilgangi en er því miður fullt af rangfærslum. Mæli með að fólk kynni sér efni slóðarinnar hér fyrir ofan. Leyfum erfðafræðingunum, með rétta menntun til, að útskýra hættuna ef hún er einhver.
Einar Bergmundur - miðvikudagur 1. desember, 2010 klukkan 08:00:06
Reyndar hafa erfðaræðingar með "rétta" menntun viðurkennt að hættan sé til staðar þótt þeir telji hana "frekar ólíklega". Það verður líka að gera grein fyrir hagsmunum fræðimanna sem annara.
Ekki biðjum við t.a.m. Catalinu að útskýra og greina kosti og galla vændis. Á erfðafræðitilraunum eru margar hliðar. Sumar siðferðilegar og á því sviði efast ég um hæfi margra erfðafræðinga.