Fréttir
Jónsmessan og kyngikrafturinn
Kyngimagnaðar sögur af undrum sem gerast á Jónsmessunótt* er að finna víða í þjóðsögum og hindurvitnum. Flestir kannast við að kýr geti talað mannamál þá nótt og hafa heyrt að gott sé að rúlla sér berstrípuðum úr dögginni á Jónsmessunótt.
Í Sögu daganna eftir Árna Björnsson segir m.a.:
„Nokkrar grastegundir skal vera gott að tína á Jónsmessunótt. Þá má nefna mjaðurt** til að vita hver hefur stolið frá manni. Um hana segir svo: tak mjaðurt sjálfa Jónsmessunótt um lágnættið, lát í munnlag með hreint vatn. Fljóti hún, þá er það kvenmaður, sökkvi hún, þá er það drengur. Skugginn sýnir þér, hver maðurinn er. Þar við skal hafa þennan formála: Þjófur, ég stefni þér heim aftur með þann stuld, sem þú stalst frá mér, með svo sterkri stefnu, sem guð sjálfur stefndi Djöflinum úr Paradís í Helvíti“. Tilvitnun lýkur.
*Jónsmessan er þ. 24. júní en sumarsólstöður eru þ. 21. júní.
**Mjaðurt [Filipendula ulmaria] hefur löngum verið talin góð við magakveisum og ber ljúfan angan. Hún er oft nefnd „magnýl grasalækna“.
Sjá nokkrar niðurstöður af vísindalegum rannsóknum á Mjaðurt á PubMed. Ath! Slá þarf inn „Filipendula ulmaria“ í leitarvél.
Sjá einnig útbreyðslukort o.fl. upplýsingar á Plöntuvefsjá Náttúrufræðistofnunar. Ath! Slá inn „Filipendula ulmaria“ sem latneskt heiti.
Myndin er af mjaðurtarakri í Grímsnesi í lok júlí 2005. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.
Tengdir viðburðir
Sumarsólstöður - lengsti dagur ársins
21. jún. 2009 00:48
NA - - 000 Óstaðsett
Jónsmessa
24. jún. 2009 00:00
NA - - 000 Óstaðsett
Einkunn
- Dagatal
- Fróðleikur
- Grasagudda
Tengt lesefni:
Dagatal: Náttúrudagatal [71]
Fróðleikur: Þjóðlegt [20]
Grasagudda: Jurtir [209]
Grænar síður:
Þjóðlegt [1]
Jurtir [2]

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal
| sun | mán | þri | mið | fim | fös | lau | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 29 | 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | 05 | maí |
| 06 | 07 | 08 | 09 | 10 | 11 | 12 | maí |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | maí |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | maí |
| 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 01 | 02 | jún |
| 03 | 04 | 05 | 06 | 07 | 08 | 09 | jún |
| 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | jún |
| 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | jún |
| 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | jún |

Nýleg orð í belg
Hvernig fæ ég glerglös og aðrar glervörur (t.d. kristal) til að verða glansandi (með náttúrulegum ...
AP 16. 05. 2012 23:42:
Bórax hefur fengist í Handverkshúsinu í Bolholti í Reykjavík (notað til að hreinsa silfur og ...
Auður Páls 16. 05. 2012 23:39:
Ein stór spurning varðandi leyfisveitingu UST á útiræktun (og almenna ræktun, innanhús líka þvæi ekki ...
Dominique 13. 05. 2012 12:41:
Spurning hvort fólk sem hefur kynnt sér neikvæðu hlíðar af erfðatækni ættu að fá að ...
Morten Lange 12. 05. 2012 02:03:
Einar Benediktsson um Kínamál: http://visir.is/kinamal-/article/2012705099999
Guðrún Tryggvadóttir 9. 05. 2012 10:04:
Við munum þurfa að berjast og berjast. Griðungar stóriðju munu heimta orku án afláts og ...
Árni Gunnarsson 6. 05. 2012 13:18:
Sæl Gígja. Ef settar eru niður nægilega háar trjáplöntur í lúpínubreiðurnar,þá vaxa þær vel og ...
Eyjólfur Guðmundsson 2. 05. 2012 09:35:
Nú veit ég ekki. Reyndu t.d. Félag hjúkrunarfræðinga!
Guðrún Tryggvadóttir 1. 05. 2012 12:08:








