Fréttir
Af skarfakáli
Í kaflanum „Nokkrar nytjajurtir, er vaxa hér villtar“ úr bókinni Grænmeti og ber allt árið - 300 nýjir jurtaréttir eftir Helgu Sigurðardóttur frá árinu 1941 segir:
„Skarfakál [Cochlearia officinalis] var fyrrum talið eitt hið óbrigðulasta meðal við skyrbjúg, og var tröllatrúin svo mikil á ágæti þess, að oft var sjúkt fólk sent langar leiðir, til að vera nokkurn tíma þar sem skarfakálið var fáanlegt og var lækningamáttur þessarar jurtar svo mikil, að fólkið var heilbrigt eftir nokkra daga. Nú hafa vísindin sannað ágæti skarfakálsins, þar sem Höskuldur Dungal læknir hefir rannsakað það, og birt með leyfi Nielsar Dungals prófessors niðurstöður af rannsóknunum, sem birzt hafa í læknablaðinu:
C-vítamín.
Mg. pr. gramm.
„Skarfakál, blöð........1,00 - 1,65
Skarfakál, stönglar ........0,60
Um skarfakálið sannast það hér, sem löngu var vitað, að mikið C-fjörvi hlyti að vera í því. En að það reyndist svo auðugt sem tölurnar sýna, hefði maður samt varla búizt við. Sennilega er þetta auðugasti C-fjörvisgjafinn, sem til er hjer á landi og hefði mann ekki grunað að upp úr íslenzkri mold sprytti jurt, sem hefir jafn mikið C-fjörvismagn og appelsínur og sítrónur og jafnvel meira en þær, því að í þeim finnst venjulega ekki nema 0,5 - 1,0 mg. pr. gramm, en í skarfakálsblöðunum allt að 50% meira. Er full ástæða til að athuga möguleika fyrir því að rækta skarfakál og gera það að föstum lið í fæðu landsmanna“.
Um skarfakálið segir séra Björn Halldórsson í Grasnytjum: „Þessi jurt er haldin ein sú allra bezta í móti skyrbjúgi, hún er og góð í móti tíða-stemmu kvenna. Af skarfakáli gjörist grautur, sem af öðru káli, má það líka salta til matar, og geyma svo, líka gjörist þar af gott og hollt salat“.
Úr skarfakáli má matbúa súpur, jafninga og salöt, en hollast er að borða það hrátt, því vitað er og sannað að C-vítamín þolir illa suðu. Sagt er frá því í gömlum bókum, að sjóða megi skarfakál í mjólk eða mysu, í stað grjóna. 3 tegundir eru til af skarfakáli. Sú tegund sem vex við sjó á nesjum og eyjum, ber töluverðan saltkeim, og blöðin af henni eru ekki eins þykk eða safamikil, eins og því sem vex í ósaltri jörð.“
Myndin er tekin af skarfakáli í grassverði á bjargbrún Látrabjargs þann 04.06.2005.
Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.
Einkunn
- Dagatal
- Fróðleikur
- Grasagudda
Tengt lesefni:
Dagatal: Náttúrudagatal [71]
Fróðleikur: Þjóðlegt [20]
Grasagudda: Gróður og nytjar [218]
Grasagudda: Í pottinum [118]
Grasagudda: Lækningajurtir [175]
Grænar síður:
Þjóðlegt [1]
Gróður og nytjar [1]
Lækningajurtir [2]

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal
| sun | mán | þri | mið | fim | fös | lau | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 29 | 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | 05 | maí |
| 06 | 07 | 08 | 09 | 10 | 11 | 12 | maí |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | maí |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | maí |
| 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 01 | 02 | jún |
| 03 | 04 | 05 | 06 | 07 | 08 | 09 | jún |
| 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | jún |
| 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | jún |
| 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | jún |

Nýleg orð í belg
Hvernig fæ ég glerglös og aðrar glervörur (t.d. kristal) til að verða glansandi (með náttúrulegum ...
AP 16. 05. 2012 23:42:
Bórax hefur fengist í Handverkshúsinu í Bolholti í Reykjavík (notað til að hreinsa silfur og ...
Auður Páls 16. 05. 2012 23:39:
Ein stór spurning varðandi leyfisveitingu UST á útiræktun (og almenna ræktun, innanhús líka þvæi ekki ...
Dominique 13. 05. 2012 12:41:
Spurning hvort fólk sem hefur kynnt sér neikvæðu hlíðar af erfðatækni ættu að fá að ...
Morten Lange 12. 05. 2012 02:03:
Einar Benediktsson um Kínamál: http://visir.is/kinamal-/article/2012705099999
Guðrún Tryggvadóttir 9. 05. 2012 10:04:
Við munum þurfa að berjast og berjast. Griðungar stóriðju munu heimta orku án afláts og ...
Árni Gunnarsson 6. 05. 2012 13:18:
Sæl Gígja. Ef settar eru niður nægilega háar trjáplöntur í lúpínubreiðurnar,þá vaxa þær vel og ...
Eyjólfur Guðmundsson 2. 05. 2012 09:35:
Nú veit ég ekki. Reyndu t.d. Félag hjúkrunarfræðinga!
Guðrún Tryggvadóttir 1. 05. 2012 12:08:








