Fréttir
Tappinn kominn í - Hálslónsmálið
Í morgun um kl 9:47 var lokið við að koma tappanum fyrir í hliðarveggjum Jöklu, sem áður höfðu verið inngangur að hjárennslisgöngunum. Jöklustíflunin kallast þá að Hálslónsmyndun sé hafin. NFS sjónvarpaði beint frá atburðinum og hafa sjálsagt margir horft á stíflunina í beinni. Múgur og margmenni verkfræðinga, fyrirmanna Landsvirkjunar og Impreglio auk fréttamanna í tugatali, voru viðstödd athöfnina. Ábyrgðaraðilar virkjunarinnar sem eru að sjálfsögðu fyrst og síðast landsmenn hafa þó margir blendnar tilfinningar. Aðeins 38 tímum fyrir átöppunina tóku 3,5 - 5% þessara óviljugu ábyrgðaraðila þátt í Jökulsárgöngu með Ómari Ragnarssyni (mótmælagöngunni miklu) og reyndu með samstöðu sinni að forða því að tappinn yrði settur í. Ómar Ragnarsson segir okkur að það sé ekki allur skaður skeður þó að fái að seytla í lónið til vors, en að mikil barátta sé fyrir höndum að forða landinu frá þeim græðgisöflum sem hér séu að verki.Sigurður Arnalds upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar sagði okkur grátklökkur í sjónvarpsviðtali að „vel og tryggilega yrði lokað fyrir, svo ekki væri nokkur leið að taka tappann nokkurn tíma úr“. Sigurður var enda sár yfir því að störf hans og annarra sem unnið hafa baki brotnu við virkjunina væru „niðurlægð“ með hugmynd Ómars. Enda líklega lengi verið hlakkað til þessarar stundar sem hátiðarstundar af framkvæmdaaðilum þó að hljóðið í mönnum á gjábakkanum væri þegar stundin loks kom, þó sveipuð dularfullum blæ sem gaf ekki tilefni til áberandi hátíðarhalda.
Það er erfitt fyrir þá að loka augunum fyrir staðreyndum málsins sem er að þjóðin stendur „ekki einhuga á bak við þessar framkvæmdir“. Þó ætti enginn að áfellast mennina perónulega fyrir að hafa fengið ábyrgðarmikil störf hjá sínum vinnuveitendum. En hætturnar eru einfaldlega of augsýnilegar til að loka augunum, hvað ef t.d. hlaup yrði í Brúarjökli núna (einhverjir skrykkir hafa nú verið í gangi í Vatnajökli á síðustu dögum, og vatnsflaumurinn myndi fylla lónið miklu fyrr en áætlað var, og stífluveggurinn alls ekki tilbúinn hvað þá aðrennslisgöngin. Fyrir utan alla hina áhættuþættina sem ekki verða raktir hér.
Myndin er af sjónsvarpsskermnum heima hjá okkur kl. 9:47 þ. 28. 09 2006.
Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.
Einkunn
0 orð í belg
Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.
Tengt lesefni:
Umhverfið: Náttúruspjöll [150]
: Áliðnaður [52]
: Orka [32]
: Orkumál [38]
: Umhverfið [28]
: Virkjun [112]
Grænar síður:
Náttúruspjöll [2]
Áliðnaður [1]
Orka [2]
Orkumál [1]
Virkjun [1]

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal
| sun | mán | þri | mið | fim | fös | lau | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 29 | 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | 05 | maí |
| 06 | 07 | 08 | 09 | 10 | 11 | 12 | maí |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | maí |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | maí |
| 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 01 | 02 | jún |
| 03 | 04 | 05 | 06 | 07 | 08 | 09 | jún |
| 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | jún |
| 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | jún |
| 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | jún |

Nýleg orð í belg
Eldhúsið - Hreinlætisvörur
Hvernig fæ ég glerglös og aðrar glervörur (t.d. kristal) til að verða glansandi (með náttúrulegum ...
AP 16. 05. 2012 23:42:
Hvernig fæ ég glerglös og aðrar glervörur (t.d. kristal) til að verða glansandi (með náttúrulegum ...
AP 16. 05. 2012 23:42:
Gleymdu klórnum og öðrum ónáttúrulegum hreinsiefnum!
Bórax hefur fengist í Handverkshúsinu í Bolholti í Reykjavík (notað til að hreinsa silfur og ...
Auður Páls 16. 05. 2012 23:39:
Bórax hefur fengist í Handverkshúsinu í Bolholti í Reykjavík (notað til að hreinsa silfur og ...
Auður Páls 16. 05. 2012 23:39:
Græðgin í auðlindir landsins
Ein stór spurning varðandi leyfisveitingu UST á útiræktun (og almenna ræktun, innanhús líka þvæi ekki ...
Dominique 13. 05. 2012 12:41:
Ein stór spurning varðandi leyfisveitingu UST á útiræktun (og almenna ræktun, innanhús líka þvæi ekki ...
Dominique 13. 05. 2012 12:41:
Ráðstefna um erfðabreytta ræktun, sleppingu og dreifingu
Spurning hvort fólk sem hefur kynnt sér neikvæðu hlíðar af erfðatækni ættu að fá að ...
Morten Lange 12. 05. 2012 02:03:
Spurning hvort fólk sem hefur kynnt sér neikvæðu hlíðar af erfðatækni ættu að fá að ...
Morten Lange 12. 05. 2012 02:03:
Seljum Ísland hvað sem það kostar
Einar Benediktsson um Kínamál: http://visir.is/kinamal-/article/2012705099999
Guðrún Tryggvadóttir 9. 05. 2012 10:04:
Einar Benediktsson um Kínamál: http://visir.is/kinamal-/article/2012705099999
Guðrún Tryggvadóttir 9. 05. 2012 10:04:
Fjölmennt á málþingi Landverndar og Eldvatna - samtaka um náttúruvernd í Skaftárhreppi
Við munum þurfa að berjast og berjast. Griðungar stóriðju munu heimta orku án afláts og ...
Árni Gunnarsson 6. 05. 2012 13:18:
Við munum þurfa að berjast og berjast. Griðungar stóriðju munu heimta orku án afláts og ...
Árni Gunnarsson 6. 05. 2012 13:18:
Landneminn alaskalúpína
Sæl Gígja. Ef settar eru niður nægilega háar trjáplöntur í lúpínubreiðurnar,þá vaxa þær vel og ...
Eyjólfur Guðmundsson 2. 05. 2012 09:35:
Sæl Gígja. Ef settar eru niður nægilega háar trjáplöntur í lúpínubreiðurnar,þá vaxa þær vel og ...
Eyjólfur Guðmundsson 2. 05. 2012 09:35:
Samtök áhugafólks um umhverfi og vellíðan í burðarliðnum
Nú veit ég ekki. Reyndu t.d. Félag hjúkrunarfræðinga!
Guðrún Tryggvadóttir 1. 05. 2012 12:08:
Nú veit ég ekki. Reyndu t.d. Félag hjúkrunarfræðinga!
Guðrún Tryggvadóttir 1. 05. 2012 12:08:








