Eldhúsgarðurinn: Ræktun
VIðmið um sáningu og plöntun sé farið eftir stjörnumánuðum
Úr Búnaðarbálki Björns Halldórssonar í Sauðlauksdal fáum við eftirfarandi viðmið um sáningu og plöntun. Er þá fylgt ferð tunglsins gegnum stjörnumerkin, en það tekur það rúma tvo daga að ferðast gegnum hvert merki á sinni 28-29 daga hringferð. Vegvísi þarf til að rækta með hjálp mánans og stjarnanna, en gangur himintunglanna er breytilegur frá ári til árs. Sérstakt bændaalmanak sem inniheldur þessr upplýsingar er gefið út í flestum löndum umhverfis okkur á hverju ári til að hægt sé að átta sig á frjósemi hinna einstöku daga.Að auki taka nokkrir menn mark á því hvar tungl er í himinteiknunum. Þeirra regla er þessi:
- Þeir sá því, sem ofan jarðar á að vaxa, í tvíbura-, vigtar- og vatnsberamerkjum.
- Hinu sem undir jörð á að vaxa í hrúts-, meyjar- og steingeitarmerkjum.
- Heitum kryddjurtum vilja þeir sá í tarfs-, bogmanns og ljónsmerkjum.
- Í sporðdreka-, krabba- og fiskamerkjum vilja þeir hvorki sá né planta.
- Tunglið sem ferðast um hvert stjörnumerki á rúmlega tveimur sólarhringum hefur þá sömu áhrif og stjörnumerkið sjálft.
Hrútsmerkið byrjar nær 20. mars og stendur til um 20. apríl. Hrútsmerkið er góð viðmiðun til ræktunar burtséð frá gangi tunglsins. Á boðunardegi Maríu eða 25. mars sem er rétt eftir jafndægur er talið gott að setja fram kartöflur í spírun. Gulrótum má sá úti, þegar jörð er orðin frostlaus og sæmilega vorar, ef garðurinn er vel staðsettur og sama gegnir um harðgerar plöntur ef þær eru vel varðar með plasti eða akryldúkum og jafnvel teppi breytt yfir komi frostakafli eða frostnætur. Næpum og rófum má forsá inni eða í gróðurskýli. Séra Björn Halldórsson mælir með því að setja næpnafræ í sætt vín og láta spíra og gefi það betra bragð ef jörðin „sé góð og sæt einnig en hvorki súr né barkand”.
þessi grein er lengri, lesa meira...
Hildur Hákonardóttir
17. maí 2012 10:50
Uppruni: Björn Halldórsson / Hildur Hákonardóttir
Einkunn
Öðruvísi „gras-flötur“ - Villigarðurinn
Ef þú hefur ákveðið að setja upp fallega og græna grasflöt til þess að geta tölt á eftir sláttuvélinni vikulega eða oftar, ættirðu að fá að vita að hægt er að hafa annars konar flöt, ekki síður fallega og sem þarf ekki að slá.
Í staðinn fyrir grasfræl er sáð öðru fræi af lágvöxnum plöntum sem þola átroðning. Kannski ekki eins mikinn en þola þó vel að gengið sé um.
Blóðberg [Thymus arcticus] er ein af þessum plöntum og þá þarf nú undirlagið að vera gróft og sendið. Ímyndaðu þér flöt sem er dökkgræn og skiptir svo um lit og verður bleik og fjólublá. Svo er hún sígræn í ofanálag. Enginn gulur litur á haustin og ekkert slabb á vorin. Og þegar stigið er á hana gýs upp höfugur ilmur blóðbergs sem kitlar lyktarkirtlana.
Hvítsmári [Trifolium repens] er önnur planta sem hægt er að þekja með. Ljósgrænn og fínlegur og þegar hann blómstrar verður flötin kremhvít og ilmurinn fyrir vitin. Hann er þó öllu viðkvæmari en blóðbergið svo hægt er að hafa stiklur til að ganga á. Það er svo bónus að smárinn framleiðir köfnunarefni sem ný tist öðrum plöntum.
![]()
Helluhnoðri [Sedum acre] getur myndað stóra flekki og jafnvel heila flöt ef undirbúningurinn er réttur. Hann er ljóselskur og þolir ekki vatn á rótunum svo að undirlagið þarf að vera möl. Þá verður flötin sterkgul þegar hnoðrinn blómstrar. Hann þolir alls ekki að gengið sé á honum svo þú verður að hafa stiklur eða stíga.
Gulmaðra [Galium verum] er gullfalleg og vel mætti hugsa sér að prófa hana en ekki hef ég trú á að hún blómstri mikið ef að gengið er á henni.
Ef þú vilt koma þér upp svona flöt verðurðu að vinna undirvinnuna af kostgæfni. Þú verður að losa þig við allt plöntukyns sem vex þar sem þú ætlar að hafa flötina og vinna jarðveginn á gott dýpi. Þá plantarðu í yfirlagið og hefur um þrjátíu sentimetra á milli planta. Eftir um tvö ár ættu plönturnar að hafa náð því að vaxa saman í eina fallega heild. En þú getur búist við að fræ berist í flötina með dýrum eða vindi svo það getur verið nokkur vinna að halda henni “hreinni” þar til það sem þú hefur plantað hefur algerlega þakið flötina svo aðrar tegundir eigi erfiðara uppdráttar. Jafnvel þá geturðu búst við innrás.
![]()
Sortulyng [Arctostapylos uvaursi] er í erlendum bókum talin góð sem “groundcover” eða þekjuplanta en ekki sé ég það nú beint fyrir mér á flöt þótt það geti verið ágætt undir trjám og jafnvel runnum. En fallegt er það. Þá eru títuber [Vaccinium vitis-idaea] sett í sama flokk en einhvern veginn er mér líka fyrirmunað að ímynda mér þau undir fótum þeirra sem leið eiga um flötina.
þessi grein er lengri, lesa meira...
Þorsteinn Úlfar Björnsson
16. maí 2012 21:31
Uppruni:
Einkunn
Eldhúsgarðurinn - einföld leið til að gera sér gróðurreit hvar sem er
Ef þú hefur aðeins lítið pláss til umráða eða getur fengið smá pláss á svölum eða holað þér niður hjá vini eða kunningja gætir þú komið þér upp Eldhúsgarði í örlitlu útgáfunni. Góð stærð til að miða við er einn fermeter 1m2 en á einum fermeter má rækta ýmislegt og hafa gaman af. Ef reiturinn er ekki plægður fyrir getur þú skellt niður einföldum fjórhliða botnlausum kassa. Hann má gera úr mótatimbri eða bara einhverjum viðarafgöngum sem finnast víða. Hornin má festa saman með gúmmíbút, skósólum af ónýtum strigaskóm eða gömlum stígvélum. Heftibyssa eða nokkrar skrúfur hjálpa þér síðan við að festa heimatilbúnu „lamirnar“ á timbrið. Um að gera að kosta sem minnstu til og nota það sem til er. Auðvitað má einnig nota fínar lamir, skrúfa eða negla spýturnar saman.




þessi grein er lengri, lesa meira...
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
5. maí 2012 09:35
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Um sýrustig jarðvegs
Sýrustig jarðvegs er mælt í stigum, sem kölluð er ph-gildi og eru frá 0 til 14. Meðalgildið er talið 7 og er þá sagt að jarðvegurinn sé hlutlaus. Flestar plöntur vaxa best við hlutleysi og margar þola örlítið súran jarðveg, þ.e. lægri gildi en 7. Sumar eru þó ansi sérhæfðar og fúlsa við jarðvegi sem hæfir þeim ekki hvað sýrustig varðar. Nokkrar krefjast mjög basísks jarðvegs en aðrar mjög súrs eins og t.d. ýmsar lyngtegundir. Þar sem er mikið barrfelli, er jarðvegur súr vegna efnaeiginleika barrsins þegar það brotnar niður. Jarðvegur á báðum endum skalans er mjög fastheldinn á næringarefnin sem hann hefur að geyma.
Úr Villigarðinum eftir Þorstein Úlfar Björnsson.
Grafík: Jarðvegurinn, Guðrún Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir.
nánar
Þorsteinn Úlfar Björnsson
29. apríl 2012 12:30
Uppruni:
Einkunn
Lífrænar varnir
Lífrænar varnir hafa aukist í garðrækt á síðustu árum. Þær felast í því að nota lífveru á móti lífveru. Í þessu skyni hafa verið fundin skordýr og gerlar sem ráðast á meindýrin en láta annað í friði. Þetta er rökrétt og sennilega skárra en eitrun og lyfjagjöf. Ástæða þess að varlega skyldi fara í notkun eiturs er sú að það verða alltaf einhverjir einstaklingar sem komast af og hafa þá byggt upp ónæmi. Og það eru þessir einstaklingar sem koma genum sínum áfram til komandi kynslóða.
En önnur ástæða finnst og er hún öllu óhugnanlegri. Ég býst við að flestir hafi heyrt minnst á „týnda hlekkinn“. The typical missing link, eins og Kristján heiti ég Ólafsson mundi orða það. Sumir vísindamenn hafa leitt getum að því að það sé enginn týndur hlekkur til! Heldur hafi, einhverrra hluta vegna, orðið stökkbreytingar. Það er ýmislegt sem rennir stoðum undir þessa tilgátu. Hvað um það, með eiturnotkun gætir þú óvart orðið valdur að stökkbreytingu og skapað skrímslu sem gæti valdið verulegum usla í fánunni og/eða flórunni. Og það skrímsli þarf ekki að vera stórt. Ekki stærra en lús. Eða baktería.
Fyrir nokkrum árum voru gerðar tilraunir með geril á Rannsóknarstöð ríkisins á Mógilsá sem nota átti til að halda í skefjum fiðrildalirfum. Gerill þessi, Baccillus thuringiensis, á að vera, eftir því sem ég best veit, öðrum lífverum hættulaus. Þennan geril mun vera hægt að fá frá fyrirtæki í Englandi sem Frjó hf. hefur umboð fyrir. Það er raunar einn galli á gjöf Njarðar varðandi þennan geril sem er kallaður BT. Reyndar eru gallarnir kannski tveir ef betur er að gáð.
Í fyrsta lafi er BT gerill sem lifir í jarðvegi og ekki er vitað til að þar geri hann flugu mein. Hann mun vera rotnunargerill og ekki hafa nein bein tengsl við aðrar lífverur svo vitað sé. Það er reyndar ekki alveg ljóst á þessari stundu hvaða hlutverki hann gegnir öðru en að brjóta niður leifar annarra lífvera.
Í annan stað er það verkun hans sem skordýraeyðis sem óneitanlega vekur upp spurningar. BT virkar þannig að gró hans berst inn í görn lirfunnar. Þar býr gróið til hýsil utan um sig úr hörðu efni sem er einna líkast kristal og sker lirfuna sundur innan frá svo að hún fer að leka og deyr. Þetta gerist þó aðeins ef sýrustigið í görn lirfunnar er nákvæmlega 8.5 ph. Ef það er meira eða minna gerist þetta ekki. Þetta telja framleiðendur BT galla og eru nú að markaðssetja fleiri afbrigði BT sem umbreytast við annað sýrustig, þ.e. hærra eða lægra. Það er vegna þess að ekki eru allar lirfur með sama sýrustigið í innyflunum. Reyndar hafa framleiðendurnir boðað að innan fárra ára verði BT í ýmsum útgádum fyrir mismunandi tegundir. Gallinn er bara sá að það verða alltaf einhverjar lirfur sem eru afbrigðilegar og komast af og það eru þær sem koma genum sínum til komandi kynslóða. Þar sem er kominn ónæmur stofn og eltingarleikurinn heldur áfram.
Veirur hafa verið að koma á markaðinn erlendis en ekki hef ég séð þær hér og veit ekki til að neinar tilraunir hafi verið gerðar með þær hér á landi. Skordýr er þó hægt að fá hér bæði ránmaura og litlar vespur. Mér er ekki kunnugt um hvort þessi dýr eru nothæf úti undir berum himni en einhver þeirra gætu sjálfsagt plumað sig.
Eitt er það skordýr sem lifir hér og er alveg sérdeilis duglegt við að eyða óværu á plöntum en það er maríuhæna. Ég hef oft velt því fyrir mér af hverju hún er ekki ræktuð hér í stórum stíl og seld á frjálsum markaði. Hún er gullfalleg, meinlaus og dugleg. Það er þó rétt að geta þess að það var gerð tilraun með að sleppa þúsundum maríuhæna sem tíndar voru í norðu-Noregi í Vaglaskógi rétt fyrir 1960. Eftir þrjá-fjóra daga var hún horfin og fór „aungvum“ sögum af örlögum hennar svo að hugsanlega er hún ekki nothæf ef hún er norsk. Það væri kannski betra að reyna að fá “sænska og sósíaldemókratíska” vandamála maríuhænu!
Járnsmiðir, köngulær og hrossaflugur taka drjúgan toll svo það er um að gera að búa þeim góð skilyrði.
Þótt geitungar séu hvimleiðir og árasagjarnir hluta sumars eru þeir drjúir í lirfuveðum. Þeir fljúga með lirfurnar heim í búið og verpa í þær. Þegar nitin klekkjast út hefur lirfan nóg að éta og snæðir hýsil sinn innan frá. Það má bæta því við að það mun aðeins vera kvenflugan sem stingur að tilefnislausu og eingöngu seinni hluta sumars. Á öðrum árstímum munu geitungar aðeins stinga í sjálfsvörn. Ég minntist áðan á Frjó hf. Það hefur haft á boðstólum ýmsa ránmaura og vespur sem eiga að nýtast gegn meindýrunum. Sum þessara dýra gætu hugsanlega hjálpað til í garðinum því að minnsta kosti nokkur þeirra sætta sig við allt niður í fjögurra stiga hita. Þau eru þó aðallega ætluð fyrir gróðurhús og gætu nýst í bæði heitum og köldum skálum. Flest eru þau svo lítil að maður verður lítið sem ekkert var við þau. Vespurnar eru til dæmis aðeins einn og hálfur millimetri að lengd. Reyndar mun vera bannað að nota þessi kvikindi úti. Það segir sig þó sjálft að það má vera skolli vel lokað gróðurhús sem heldur þessum smáu lífverum innandyra. Ég er nokkuð viss um að þeir hjá Frjói hf. eru fúsir að veita allar upplýsingar um þessi smádýr.
En eins klisjukennt og það hljómar er besta vörnin forvarnir. Með fyrirhyggju má koma í veg fyrir að meindýrin verði plága. Notaðu hrein verkfæri og haltu þeim vel við. Taktu alla stiklinga af heilbrigðum plöntum. Farðu varlega með sáðplöntur og þegar þú plantar þeim. Smá sár á plöntunni opnar sjúkdómum leið. Hugsaðu vel um plöntunar þínar og sjáðu þeim fyrir góðum skilyrðum og næringu. Heilbrigðar plöntur eru eins og heilbrigt fólk, þær verjast sjúkdómum. Aukinheldur þola heilbrigðar plöntur miklu betur skordýraárásir en lélegar plöntur geta drepist.
Hafðu fjölbreytni í plöntuvali. Það er sjaldgæft að sjá veiklulegar plöntur úti í náttúrunni þar sem fjölbreytnin er mikil og umhverfið vinalegt öðrum lífverum.
Reyndu að hæna að þér fugla eins og líf þitt liggi við. Hver fugl sem heimsækir þig gæti tekið í garðinum þínum eitthvað af þeim hundrað skordýrum sem hann étur á sólarhring. Ef þú lendir í maðkaplágu geturðu prófað að úða viðkomandi tré með mildu sápuvatni, maxicrop eða hreinlega að sprauta kröftuglega á það með garðslöngunni. Athugaðu að sprauta líka upp undir blöðin því mörgu meindýranna er illa við að blotna og halda sig því neðan á blöðunum. Þetta máttu þó ekki gera í sól og heitu veðri því tré og blóm geta forkelast og fengið “kvef”.
Hvítlaukur á að fæla frá og hugsanlega gerir hann það þótt ekki hafi ég merkt mun þegar ég gerði tilraun.
Ef þú lendir í vanda með pottaplöntur geturðu búið þér til eitur úr tóbaki og vökvað með því. Tóbak er soðið og síðan er vökvað með því. Tóbak er soðið og síðan er vökvað með soðinu. Jurtaeitur gerir jurtum ekkert mein en guð hjálpi þeim sem reyna að fá sér bita af plöntunum.
Í bókinni Trjáklippingar eftir Stein Kárason er góður kafli um lífrænar varnir og sjálfsagt er hægt að finna víðar upplýsingar um slíkt. Aðalmálið er samt sem áður að búa plöntunum og dýralífinu gott jafnvægi þar sem þau geta þrifist. Og mundu að smá nart er svo miklu, miklu betur en mikið eitur. Það er kannski rétt að endurtaka það sem ég sagði fyrr. Það er miklu skemmtilegra að horfa á skordýrin puða en að horfa á blómin vaxa. Ekki að það sé neitt áhugavert við að horfa á blóm. Þau eru á allan hátt yndisleg. En, þau skarta ekki sínu fegursta til þess að komast í garðana okkar. Þau eru að laða til sín skordýr svo að þau geti stundað sitt kynlíf. Ef eitrað er og engin skordýr eru til staðar mun plöntunum fækka. Ekki láta það henda í garðinum þínum. Gangi þér vel!
Grafík: Lífrænar varnir, Guðrún Tryggvadóttir og Signý Kolbeinstdóttir ©Náttúran.is.
nánar
Þorsteinn Úlfar Björnsson
21. apríl 2012 10:53
Uppruni:
Einkunn

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal
| sun | mán | þri | mið | fim | fös | lau | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 29 | 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | 05 | maí |
| 06 | 07 | 08 | 09 | 10 | 11 | 12 | maí |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | maí |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | maí |
| 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 01 | 02 | jún |
| 03 | 04 | 05 | 06 | 07 | 08 | 09 | jún |
| 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | jún |
| 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | jún |
| 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | jún |

Nýleg orð í belg
Hvernig fæ ég glerglös og aðrar glervörur (t.d. kristal) til að verða glansandi (með náttúrulegum ...
AP 16. 05. 2012 23:42:
Bórax hefur fengist í Handverkshúsinu í Bolholti í Reykjavík (notað til að hreinsa silfur og ...
Auður Páls 16. 05. 2012 23:39:
Ein stór spurning varðandi leyfisveitingu UST á útiræktun (og almenna ræktun, innanhús líka þvæi ekki ...
Dominique 13. 05. 2012 12:41:
Spurning hvort fólk sem hefur kynnt sér neikvæðu hlíðar af erfðatækni ættu að fá að ...
Morten Lange 12. 05. 2012 02:03:
Einar Benediktsson um Kínamál: http://visir.is/kinamal-/article/2012705099999
Guðrún Tryggvadóttir 9. 05. 2012 10:04:
Við munum þurfa að berjast og berjast. Griðungar stóriðju munu heimta orku án afláts og ...
Árni Gunnarsson 6. 05. 2012 13:18:
Sæl Gígja. Ef settar eru niður nægilega háar trjáplöntur í lúpínubreiðurnar,þá vaxa þær vel og ...
Eyjólfur Guðmundsson 2. 05. 2012 09:35:
Nú veit ég ekki. Reyndu t.d. Félag hjúkrunarfræðinga!
Guðrún Tryggvadóttir 1. 05. 2012 12:08:
+ Fleiri ummæli








