Dagatal: Sáningardagatal
Sáðalmanak fyrir maí 2012

Náttúran birtir nú fjórða sáðalmanak ársins 2012 en Guðfinnur Jakobsson í Skaftholti tekur saman efni í sáðalmanök Náttúrunnar.
Efnið er unnið úr garðabók Maríu Thun, en hún hefur fengist við rannsóknir á tengslum himintungla og gróðurs í rúmlega 60 ár og gefur út sáðalmanak á hverju ári. Höfuðáhrifin eru frá tunglinu, eftir því hvernig það stendur gagnvart stjörnumerkjum dýrahringsins.
Dagur Tími
1. maí 00 – 24 ávextir
2. maí 00 – 15 ávextir, 16 – 24 rót
3. maí 00 – 24 rót
4. maí 00 – 24 rót
5. maí 00 – 16 rót, 16 – 24 óhagstætt
6. maí 00 – 16 rót, 17 – 21 blóm, 22 – 24 blað
7. maí 00 – 24 blað
8. maí 00 – 23 blað
9. maí 00 – 24 ávextir
10. maí 00 – 24 ávextir
11. maí 00 – 02 ávextir, 03 – 24 rót
12. maí 00 – 24 rót
13. maí 00 – 05 rót, 06 – 09 blóm, 10 – 24 ávextir
14. maí 00 – 12 ávextir, 13 – 24 blóm
15. maí 00 – 05 blóm, 06 – 24 blað
16. maí 00 – 05 blað, 06 – 21 ávextir, 22 – 24 blað
17. maí 00 – 24 blað
18. maí 00 – 09 blað, 10 – 24 ávextir
19. maí 00 – 24 ávextir
20. maí 00 – 09 ávextir, 10 – 21 rót, 21 – 24 óhagstætt
21. maí 00 – 14 óhagstætt, 14 – 24 rót
22. maí 00 – 24 rót
23. maí 00 – 10 rót, 11 – 14 blóm, 14 – 24 óhagstætt
24. maí 00 – 24 óhagstætt
25. maí 00 – 03 óhagstætt, 03 – 17 blóm, 18 – 24 ávexti
26. maí 00 – 24 blað
27. maí 00 – 09 blað, 10 – 24 ávextir
28. maí 00 – 23 ávextir
29. maí 00 – 23 ávextir
30. maí 00 – 24 rót
31. maí 00 – 24 rót
Til heildar stefnir stórt og smátt,
í starfi á hvað í öðru þátt.
Sjá himinöflin upp og niður stíga
og áfram gullnar skálar síga!
Á blikvængjum þau blessun færa,
frá brautum himins jörðu hræra,
samræma alheim með tóna tæra.
J. W.v Goethe. Þýð. Yngvi Jóhannesson
Á hringferð sinni umhverfis jörðina fylgir máninn nokkurnvegin braut sólarinnar, eins og hún lítur út frá jörðinni, þó ekki alveg og er því ýmist fyrir ofan hana eða neðan, þ.e. hann er annaðhvort hækkandi eða lækkandi miðað við braut sólarinnar. Þessi hreyfing mánans hefur ákrif á safspennuna í öllum gróðri. Þegar máninn er lækkandi, þá leitar safinn meira niður í ræturnar og þegar máninn fer hækkandi meira upp í efri hluta plantnanna.
Þessvegna er hagstætt að gróðursetja plöntur þegar máninn fer lækkandi, því þá er meiri kraftur í rótunum og plönturnar því fljótari að festa rætur á nýjum stað. Einnig er virkni jarðvegslífvera þá meiri.
Af þessari ástæðu er einnig hagstæðara að uppskera rótarávexti á sama tímabili, þeir eru þá kraftmeiri og geymast betur.
Tímabilið frá 1. maí til 7. og frá hádegi þann 22. til loka maí hagstætt til umplöntunar/útplöntunar.
Hvað varðar plöntur þar sem efri hluti þeirra er nýttur, þá er hagstæðast að uppskera þær þegar máninn er rísandi. Þær eru þá þróttmeiri og afurðin geymist betur. Þetta á við um blaðgrænmeti, ávexti, ber og fræ.
Oftast liggur í augum uppi hvað eru rætur, blaðplöntur, ávextir og blóm en hér skulu talin upp nokkur atriði sem geta vafist fyrir okkur.
- Til rótarplantna teljast líka sellerí, hnúðsellerí, kálrabi eða pastinaka og laukar.
- Til blaðplantna teljast hnúðfennel, aspargus, rósakál og blómkál.
- Til blómplantna teljast blómplöntur þó þær vaxi upp af laukum og brokkóli.
- Til ávaxta teljast baunir, linsubaunir, allar korntegundir, kúrbítur, grasker, agúrkur, tómatar og maiskorn.
Annað skýrir sig sjálft.
Grafík: Sáðalmanak fyrir maí 2012. Gengið er út frá því að tíminn sé ekki lína heldur spírall sem heldur endalaust áfram að mynda hringi. Árið er einn hringur og snið hvers mánaðar því 1/12 úr hring. Tunglstaðan sést á efsta baug fyrir ofan mánaðarsniðið. Línur þekja þá daga og tíma dags þegar gott er að sá til tiltekinnar tegundar jurtar. Rauð lína er fyrir ávöxt, græn fyrir blaðplöntu, brún fyrir rótarplöntu og gul fyrir blómplöntur. Táknin; ávöxtur, blað, rót og blóm eru staðsett í byrjun og við lok tímabils til afmörkunar. Guðrún A. Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir.
nánar
Guðfinnur Jakobsson / Guðrún Arndís Tryggvadóttir / Hildur Hákonardóttir
5. maí 2012 19:01
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Sáningartími, gróðursetningartími og uppskerutími í Eldhúsgarðinum
Í Eldhúsgarðurinn er virkni um matjurtirnar í garðinum þar sem upplýsingar um sáningartíma þ.e.; sáning innandyra „innisáning“ og sáningartími utandyra þ.e. beint í jörð „útisáning“, gróðursetning þeirra fræja sem vildu koma upp og eru tilbúnar til að fara út í íslenska veðráttu „gróðursetning innisáningar“ og uppskerutími „uppskera“ birtist um hverja matjurt fyrir sig.
Einnig er hægt að sjá hve mikið vaxtarrými hver jurt þarf í sentimetrum.
Með því að smella á ákveðinn beð og síðan tilteknar jurtir birtast upplýsingarnar.
nánar
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
19. apríl 2012 18:49
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Harpa - Gauksmánuður

Þar um bil byrjar sumar er sólin kemur í tarfsmerki ... kallaður gauksmánuður eða Harpa. Nú er sáðtími í fyrsta lagi í kalda jörð með því móti að vorgott sé. Og er þá betra að sá litlu salti með snemmsánu fræi eða að vökva um sinn með saltlegi eða sjóvatni. Það ver nokkuð kulda, ofþurki og líka kálormum. Frostlaus snjór, ofan í nýsáð fræ, er betri en flest önnur vökvan. Öllu því sem undir jörð á að vera má nú fyrst sá. Seint í þessum mánuði er tími að planta allar lifandi rætur, sem geymdar hafa verið í mold eða sandi á vetri. Í hlýju veðri skal pæla þá jörð upp, sem menn vilja frjósöm verði. Héla og lognfrost eru skaðlegri en frostnæðingar fyrir allar jurtir. Því skal sáðreit vel þekja þegar hélufall er.
þessi grein er lengri, lesa meira...
Björn Halldórsson í Sauðlauksdal
19. apríl 2012 08:59
Uppruni: Björn Halldórsson / Hildur Hákonardóttir
Einkunn
Sáðalmanak fyrir apríl 2012

Náttúran birtir nú þriðja sáðalmanakið fyrir árið 2012 en Guðfinnur Jakobsson í Skaftholti tók saman efni í sáðalmanök Náttúrunnar í fyrra og heldur áfram að taka þau saman fyrir okkur í ár.
Efnið er unnið úr garðabók Maríu Thun, en hún hefur fengist við rannsóknir á tengslum himintungla og gróðurs í rúmlega 60 ár og gefur út sáðalmanak á hverju ári. Höfuðáhrifin eru frá tunglinu, eftir því hvernig það stendur gagnvart stjörnumerkjum dýrahringsins.
Dagur Tími
1. apríl 00-04 blóm, 05-24 blað
2. apríl 00-18 blað, 19-24 ávextir
3. apríl 00-21 ávextir, 22-24 óhagstætt
4. apríl 00-24 óhagstætt
5. apríl 00-10 óhagstætt, 11-23 rót
6. apríl óhagstætt
7. apríl óhagstætt
8. apríl 01-06 rót, 07-24 blóm
9. apríl 00-11 blóm, 12-24 blað
10. apríl 00-24 blað
11. apríl 00-14 blað, 15-24 ávextir
12. apríl 00-24 ávextir
13. apríl 00-19 ávextir, 20-24 rót
14. apríl 00-24 rót
15. apríl 00-22 rót
16. apríl 00-24 blóm
17. apríl 00-24 blóm
18. apríl 00-24 blað
19. apríl 00-24 blað
20. apríl 00-24 blað
21. apríl 00-03 blað, 04-24 ávextir
22. apríl 00-24 ávextir
23. apríl 00-03 ávextir, 04-13 rót, 14-24 ávextir
24. apríl 00-07 ávextir, 08-24 rót
25. apríl 00-24 rót
26. apríl 00-04 rót, 05-24 blóm
27. apríl 00-24 blóm
28. apríl 00-11 blóm, 12-22 blað
29. apríl 00-22 ávextir
30. apríl 02-24 ávextir.
1. til 10. apríl er hagstætt tímabil til gróðursetningar og til að stinga græðlingum.
11. til 24. apríl hagstætt til að klippa græðlinga.
25. til 30. apríl hagstætt til gróðursetningar og til að stinga græðlingum.
Oftast liggur í augum uppi hvað eru rætur, blaðplöntur, ávextir og blóm en hér skulu talin upp nokkur atriði sem geta vafist fyrir okkur.
- Til rótarplantna teljast líka sellerí, hnúðsellerí, kálrabi eða pastinaka og laukar.
- Til blaðplantna teljast hnúðfennel, aspargus, rósakál og blómkál.
- Til blómplantna teljast blómplöntur þó þær vaxi upp af laukum og brokkóli.
- Til ávaxta teljast baunir, linsubaunir, allar korntegundir, kúrbítur, grasker, agúrkur, tómatar og maiskorn.
Annað skýrir sig sjálft.
Grafík: Sáðalmanak fyrir apríl 2012. Gengið er út frá því að tíminn sé ekki lína heldur spírall sem heldur endalaust áfram að mynda hringi. Árið er einn hringur og snið hvers mánaðar því 1/12 úr hring. Tunglstaðan sést á efsta baug fyrir ofan mánaðarsniðið. Línur þekja þá daga og tíma dags þegar gott er að sá til tiltekinnar tegundar jurtar. Rauð lína er fyrir ávöxt, græn fyrir blaðplöntu, brún fyrir rótarplöntu og gul fyrir blómplöntur. Táknin; ávöxtur, blað, rót og blóm eru staðsett í byrjun og við lok tímabils til afmörkunar. Guðrún A. Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir.
nánar
Guðfinnur Jakobsson / Guðrún Arndís Tryggvadóttir / Hildur Hákonardóttir
15. apríl 2012 10:33
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Dagsetningar um sáningu
Á Íslandi er erfitt að gefa fastar dagsetningar um sáningu, plöntun, jafnvel jurtatínslu því allt er þetta háð veðráttu og gangi himintunglanna. Alltaf verður að viðhafa vissa skynsemi. Ef erlendis jurtir eru sterkastar á morgnana áður en sól verður of sterk, getur verið að hér séu þær einmitt orkumestar um miðjan dag þegar sólin er hæst á lofti.
Varðandi ræktun er gott að sjá fyrir sér þrjá mánuðina frá jafndægrum þ.e.
Einmánuð, Hörpu og Skerplu eða tímabilið frá 20. mars til 20. júní. Þessi ársfjórðungur fer í að sá og planta. Páskar eru haldnir fyrsta sunnudag eftir fyrsta fullt tungl eftir jafndægur. Það tungl er páskatungl. Á þessum þremur mánuðum fyllir tunglið þrisvar sinnum. Þrisvar er möguleiki að endurtaka góð ráð um sáningu. Nútímaræktandinn hefur ekki frjálsan tíma heldur verður hann að laða sig að þeim kröfum sem gerðar eru til hans. Þess vegna er gott að sjá vorið fyrir sér og skrá nýtt og fullt tungl á sitt prívat almanak og þá daga sem æskilegt væri að sá og fríja þá tíma.
Sjá meira um kenningar Björns Halldórssonar og viðbætur Hildar Hákonardóttur.
Rit Björns Halldórssonar fæst hér á Náttúrumarkaði.
Sjá einnig sáðalamanak fyrir apríl skv. Maríu Thun.
Grafík: Ársskífa með sáningarfjórðungi ársins. Guðrún Tryggvadóttir, ©Náttúran.is.
nánar
Björn Halldórsson í Sauðlauksdal
27. mars 2012 11:46
Uppruni: Hildur Hákonardóttir
Einkunn

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal
| sun | mán | þri | mið | fim | fös | lau | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 29 | 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | 05 | maí |
| 06 | 07 | 08 | 09 | 10 | 11 | 12 | maí |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | maí |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | maí |
| 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 01 | 02 | jún |
| 03 | 04 | 05 | 06 | 07 | 08 | 09 | jún |
| 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | jún |
| 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | jún |
| 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | jún |

Nýleg orð í belg
Hvernig fæ ég glerglös og aðrar glervörur (t.d. kristal) til að verða glansandi (með náttúrulegum ...
AP 16. 05. 2012 23:42:
Bórax hefur fengist í Handverkshúsinu í Bolholti í Reykjavík (notað til að hreinsa silfur og ...
Auður Páls 16. 05. 2012 23:39:
Ein stór spurning varðandi leyfisveitingu UST á útiræktun (og almenna ræktun, innanhús líka þvæi ekki ...
Dominique 13. 05. 2012 12:41:
Spurning hvort fólk sem hefur kynnt sér neikvæðu hlíðar af erfðatækni ættu að fá að ...
Morten Lange 12. 05. 2012 02:03:
Einar Benediktsson um Kínamál: http://visir.is/kinamal-/article/2012705099999
Guðrún Tryggvadóttir 9. 05. 2012 10:04:
Við munum þurfa að berjast og berjast. Griðungar stóriðju munu heimta orku án afláts og ...
Árni Gunnarsson 6. 05. 2012 13:18:
Sæl Gígja. Ef settar eru niður nægilega háar trjáplöntur í lúpínubreiðurnar,þá vaxa þær vel og ...
Eyjólfur Guðmundsson 2. 05. 2012 09:35:
Nú veit ég ekki. Reyndu t.d. Félag hjúkrunarfræðinga!
Guðrún Tryggvadóttir 1. 05. 2012 12:08:
+ Fleiri ummæli









