Húsið: Iðnaður
Græn viðskipti

Með vitundarvakningu og þátttöku almennra neytenda er hægt að nota markaðsöflin til þess að leysa mörg af þeim umhverfisverkefnum sem heimurinn stendur frammi fyrir í dag, hvort sem þau eru staðbundin eða hnattræn.
Grænu síðurnar hjálpa þér að finna náttúrulegar og umhverfisvænar vörur og þjónustu og þau fyrirtæki sem huga að umhverfinu í starfsemi sinni.
Grænt Íslandskort sýnir þér hvar á landinu grænar lausnir eru í boði.
nánar
Náttúran er
7. júlí 2011 18:33
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Gróðurhúsaáhrif
Eitt stærsta vandamál nútímans er losun gróðurhúsalofttegunda. Ástæðan er sú að gróðurhúsalofttegundir í andrúmsloftinu eins og koltvíoxíð, metan og vatnsgufa valda því að sá varmi sem berst frá sólinni endurkastast ekki aftur út í geiminn, heldur safnast upp í andrúmsloftinu. Þannig myndast eins konar gróðurhús utan um jörðina.
Meðalhiti jarðar hefur þegar hækkað um 0,7°C frá því fyrir iðnbyltingu og fram á okkar tíma. Magn koltvíoxíðs hefur hækkað frá 280 ppm upp í 375 ppm (2005).
þessi grein er lengri, lesa meira...
Náttúran
18. apríl 2010 22:54
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Húseigendur beri ekki kostnað af óumbeðnum pappír
Talsmaður neytenda, Gísli Tryggvason, mætti í gær á fund nefndar umhverfisráðherra um aðgerðir til þess að draga úr úrgangi vegna óumbeðins prentpappírs.
Húseigendur beri ekki kostnað af pappírnum, sjálfir eða með sköttum
Í upphafi málefnalegrar umræðu og upplýsingaskipta rakti talsmaður neytenda væntingar sínar um samkomulag í nefnd á vegum Póst- og fjarskiptastofnunar (PFS) um rétt neytenda til þess að afþakka fjölpóst eða fríblöð eða hvort tveggja - þ.m.t. fjölpóst í fríblöðum, sbr. nánari umfjöllun hér. Tækist slíkt samkomulag yrði vandi þessarar nefndar væntanlega minni en vissulega brýnt að taka á honum..
þessi grein er lengri, lesa meira...
Gísli Tryggvason
28. mars 2008 23:00
Uppruni: Talsmaður neytenda
Einkunn
Umhverfisþættir í rekstri olíuhreinsunarstöðva
Nú þegar að umræðan um olíuhreinsunarstöð á Vestfjörðum er farin á stjá á ný vakna spurningar um það hvað slík verksmiðja hefði í för með sér og hvað verið væri að tala um í umhverfislegu tilliti með því að planta niður olíuhreinsunarstöð á Vestfjörðum. Þá er gott að eiga fagfólk að sem að skoðar hlutina ofan í kjölinn og getur upplýst okkur um hvað felist raunverulega í slíkum hugmyndum. Stefán Gíslason umhvefisstjórnunarfræðingur sendi inn grein á strandir.is í fyrravor en greinin fjallar einmitt ítarlega um umhverfisþætti olíuhreinsunarstöðva.
„Í tilefni af umræðu síðustu daga um hugsanlega byggingu olíuhreinsistöðvar í Dýrafirði hef ég tekið saman nokkur atriði varðandi umhverfisþætti í rekstri slíkra stöðva. Samantektin byggir einkum á gögnum frá evrópsku IPPC-skrifstofunni í Sevilla (The European IPPC Bureau), en hlutverk hennar er að stuðla að miðlun upplýsinga um bestu fáanlegu tækni (Best Available Techniques (BAT)) í samræmi við Mengunarvarnatilskipun ESB nr. 96/61/EC (IPPC-tilskipunina). Kjarninn í þessu starfi skrifstofunnar er að útbúa svonefnd BREF-skjöl (BAT-Reference Documents), sem yfirvöldum í ríkjum ESB og EES ber að taka mið af við úthlutun starfsleyfa fyrir mengandi starfsemi. (1) BREF-skjölunum er ætlað að upplýsa hlutaðeigandi aðila um þá valkosti sem fyrir hendi eru í tæknilegu og fjárhagslegu tilliti og eru til þess fallnir að bæta umhverfislega frammistöðu fyrirtækja í einstökum iðngreinum. Samantektin sem hér fer á eftir byggir fyrst og fremst á BREF-skjali IPPC-skrifstofunnar fyrir olíuhreinsistöðvar.
þessi grein er lengri, lesa meira...
Stefán Gíslason
18. janúar 2008 22:58
Uppruni: Stefán Gíslason
Einkunn

Ef smellt er á hluti birtast nánari upplýsingar
Húsið og umhverfið
Heimilið er eitt það dýrmætasta sem við eigum. Þar eigum við skjól fyrir veðri og vindum hversdagsins. Þar fáum við hvíld og endurnærum líkama og sál. Með því að stjórna umhverfismálum heimilisins náum við einnig stjórn á umhverfismálum heimsins. Ef hver og einn hugsaði af kostgæfni um heimili sitt og nánasta umhverfi myndi margt fara á betri veg. Húsið er því lykillinn bæði að vistvænum lífsstíl fjölskyldunnar og að lausn umhverfismála heimsins.
Í Húsinu og umhverfi þess eru 12 rými. Ef smellt er á utanhússrýmin, herbergin og síðan einstaka hluti þegar komið er inn í rýmin, birtast upplýsingar um hvernig umhverfi og heilsa geta tengst þeim. Húsið er þannig í raun gagnabanki um umhverfisvænan lífsstíl og lykill að umhverfislausnum fyrir heimilið. Hafa ber einnig í huga að umhverfisvænn lífsstíll sparar peninga og er hagkvæmur þegar til lengri tíma er litið bæði fyrir menn og náttúru.
nánar
Náttúran er
30. ágúst 2007 10:50
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal
| sun | mán | þri | mið | fim | fös | lau | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 29 | 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | 05 | maí |
| 06 | 07 | 08 | 09 | 10 | 11 | 12 | maí |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | maí |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | maí |
| 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 01 | 02 | jún |
| 03 | 04 | 05 | 06 | 07 | 08 | 09 | jún |
| 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | jún |
| 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | jún |
| 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | jún |

Nýleg orð í belg
Hvernig fæ ég glerglös og aðrar glervörur (t.d. kristal) til að verða glansandi (með náttúrulegum ...
AP 16. 05. 2012 23:42:
Bórax hefur fengist í Handverkshúsinu í Bolholti í Reykjavík (notað til að hreinsa silfur og ...
Auður Páls 16. 05. 2012 23:39:
Ein stór spurning varðandi leyfisveitingu UST á útiræktun (og almenna ræktun, innanhús líka þvæi ekki ...
Dominique 13. 05. 2012 12:41:
Spurning hvort fólk sem hefur kynnt sér neikvæðu hlíðar af erfðatækni ættu að fá að ...
Morten Lange 12. 05. 2012 02:03:
Einar Benediktsson um Kínamál: http://visir.is/kinamal-/article/2012705099999
Guðrún Tryggvadóttir 9. 05. 2012 10:04:
Við munum þurfa að berjast og berjast. Griðungar stóriðju munu heimta orku án afláts og ...
Árni Gunnarsson 6. 05. 2012 13:18:
Sæl Gígja. Ef settar eru niður nægilega háar trjáplöntur í lúpínubreiðurnar,þá vaxa þær vel og ...
Eyjólfur Guðmundsson 2. 05. 2012 09:35:
Nú veit ég ekki. Reyndu t.d. Félag hjúkrunarfræðinga!
Guðrún Tryggvadóttir 1. 05. 2012 12:08:
+ Fleiri ummæli








