Húsráð: Stofan

Tannkrem á píanónóturnar

Nótnaborðið á píanóinu verður aftur fallegt ef nóturnar eru nuddaðar með tannkremi í blautum klút. Látið þorna á nótnaborðinu og síðan eru nóturnar pússaðar með mjúkum klút.

Grafík: Píanónótur, Guðrún A. Tryggvadóttir.


nánar

Siiri Lomb
16. maí 2012 19:32
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Deildu með vinum
Húsgögn Húsgögn Húsgögn Húsgögn Tónlist & myndir Hljómflutningstæki Bækur Sjónvarp Lýsing Myndlist Lýsing Stofan husid_stofan
BendillEf smellt er á hluti birtast nánari upplýsingar

Stofan - Húsgögn

Húsgögn og innbú okkar samanstendur af ýmsum efnum bæði úr jurta- og steinaríkin s.s. viði, málmum, gleri, trefjum úr plöntum, steinefnum og úr gerviefnum allskonar. Það eru aðallega þau sem að við þurfum að vera með augun opin gagnvart. Ekki aðeins getur útgufun ákveðinna efna verið heilsuspillandi heldur geta umhverfisáhrif verið geigvænleg. Yfir 100.000 efni eru notuð í allskyns framleiðslu í heiminum í dag, mörg hver hafa ekki verið rannsökuð nægjanlega áður en þau verða hluti framleiðslu. Eins gildir að það sem er meinlaust í ákveðnu magni getur verið skaðlegt í meira magni eða í sambandi við önnur efni.

Ef við tökum húsgögn úr viði sem dæmi, þá skiptir máli út frá umhverfissjónarmiðum að skógurinn hafi verið ræktaður á sjálfbæran hátt. Húsgögn merkt sem Forest Stewardship Council (FSC) eru örugglega ekki úr regnskógarvið heldur úr sjálfbærum skógum. Korkur er talin til þeirra náttúruefna sem eru umhverfisvæn, sérstaklega ef hann er endurunnum úr korktöppum. PVC- gólfdúkur getur aftur á móti undir engum kringumstæðum talist heilsusamlegur né umhverfisvænn.

Þegar kaupa á húsgögn eins og sófasett er ráðlagt að kaupa vandaða og endingargóða vöru. Sem kaupandi hefurðu rétt til að vita hvaðan efnin sem sófinn er gerður úr eru fengin og hvernig og hvar vinnsla fór fram. Athugaðu að áklæðið getur innihaldið eiturefni svo og leðurlíki sem getur innihaldið PVC. Það er ekki dónalegt að spyrja spurninga í verslunum. Til að ná fram breytingum á framboði verða neytendur að byrja á að spyrja spurninga og setja fram kröfur, öðruvísi gerist ekkert.

Sjá nánar um hættuleg efni og tilbúin efni.


nánar

Náttúran er
9. maí 2012 12:19
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Deildu með vinum
Húsgögn Húsgögn Húsgögn Húsgögn Tónlist & myndir Hljómflutningstæki Bækur Sjónvarp Lýsing Myndlist Lýsing Stofan husid_stofan
BendillEf smellt er á hluti birtast nánari upplýsingar

Stofan - Sjónvarp

Sjónvarpið er hinn mesti tímaþjófur á heimilinu. Það eyðir líka einna mestri raforku.
Nýju flatskjáirnir eyða t.d. gífurlegri orku, miklu meiri en forverar þeirra túpuskjáirnir. Flestir eru þó sammála um að LCD skjáir séu skárri en Plasma skjáir hvað þetta varðar.

Orkunotkun tækja er skilgreind með orkumerkjum s.s. Energy Star og Evrópska orkumerkinu.

Um 10% raforkunotkunar heimilistækja fer oft á tíðum í svokallaða biðstöðu eða "Stand by" notkun. Hafa ber í huga að í biðstöðu eyða rafmagnstæki orku án notkunar. Tæki í biðstöðu skila engu til notenda nema hærri rafmagnsreikningi. Biðstaða tækja er oft kölluð rafmagnsleki enda seytlar hægt og bítandi út raforka engum til gagns. Auðveldasta leiðin til að minnka biðstöðu-notkun er að slökkva alveg á tækjum og helst að taka úr sambandi.


nánar

Náttúran er
18. mars 2012 11:36
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Deildu með vinum
Húsgögn Húsgögn Húsgögn Húsgögn Tónlist & myndir Hljómflutningstæki Bækur Sjónvarp Lýsing Myndlist Lýsing Stofan husid_stofan
BendillEf smellt er á hluti birtast nánari upplýsingar

Stofan - Myndlist

Myndlist er mikilvæg á hverju heimili ekki síður en tónlist og bækur. Hvort sem um verk virtra listamanna eða teikningu eftir börnin er að ræða, gildir að frágangur, upphenging og samspil við það sem fyrir er í rýminu gerir gæfumuninn. Það góða við „góða myndlist“ er að hún er vönduð, fer ekki úr tísku og er því ákaflega umhverfisvæn.

Um eftirprentanir og tískuskraut gildir það aftur á móti að líftíminn er stuttur vegna lélegra gæða og aðeins spurning um hvenær skrautið endar á haugunum. Ef þú þarft að kaupa skraut og skipta um myndir reglulega hafðu þá í huga að þau séu úr efnum sem hafa ekki skaðlega áhrif um aldur og ævi eftir að þú hefur losað þig við þá.


nánar

Náttúran er
9. febrúar 2012 16:21
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Deildu með vinum

Kartöflur á olíumálverk

Með því að nudda hrárri kartöflu á olímálverk fá þau ferskan blæ.


þessi grein er lengri, lesa meira...



Siiri Lomb
29. desember 2011 12:58
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Deildu með vinum
1234

2005   2006   2007   2008   2009   2010   2011   2012  
jan   feb   mar   apr   maí  

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Nýleg orð í belg

Eldhúsið - Hreinlætisvörur
Sæl, með sítrónusafa!
Guðrún Tryggvadóttir 17. 05. 2012 00:29:
Eldhúsið - Hreinlætisvörur
Hvernig fæ ég glerglös og aðrar glervörur (t.d. kristal) til að verða glansandi (með náttúrulegum ...
AP 16. 05. 2012 23:42:
Gleymdu klórnum og öðrum ónáttúrulegum hreinsiefnum!
Bórax hefur fengist í Handverkshúsinu í Bolholti í Reykjavík (notað til að hreinsa silfur og ...
Auður Páls 16. 05. 2012 23:39:
Græðgin í auðlindir landsins
Ein stór spurning varðandi leyfisveitingu UST á útiræktun (og almenna ræktun, innanhús líka þvæi ekki ...
Dominique 13. 05. 2012 12:41:
Ráðstefna um erfðabreytta ræktun, sleppingu og dreifingu
Spurning hvort fólk sem hefur kynnt sér neikvæðu hlíðar af erfðatækni ættu að fá að ...
Morten Lange 12. 05. 2012 02:03:
Seljum Ísland hvað sem það kostar
Einar Benediktsson um Kínamál: http://visir.is/kinamal-/article/2012705099999
Guðrún Tryggvadóttir 9. 05. 2012 10:04:
Fjölmennt á málþingi Landverndar og Eldvatna - samtaka um náttúruvernd í Skaftárhreppi
Við munum þurfa að berjast og berjast. Griðungar stóriðju munu heimta orku án afláts og ...
Árni Gunnarsson 6. 05. 2012 13:18:
Landneminn alaskalúpína
Sæl Gígja. Ef settar eru niður nægilega háar trjáplöntur í lúpínubreiðurnar,þá vaxa þær vel og ...
Eyjólfur Guðmundsson 2. 05. 2012 09:35:
Samtök áhugafólks um umhverfi og vellíðan í burðarliðnum
Nú veit ég ekki. Reyndu t.d. Félag hjúkrunarfræðinga!
Guðrún Tryggvadóttir 1. 05. 2012 12:08:

+ Fleiri ummæli

Fréttir frá: