Náttúran.is: Styrktaraðilar


nánar

Guðrún Arndís Tryggvadóttir
21. mars 2012 20:00
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Deildu með vinum

Reykjavíkurborg - styrkir Náttúruna

Reykjavik skjaldarmerki 120x120

Sumarið 2009 tók Náttúran.is þátt í samkeppni á vegum Höfuðborgarstofu um hugmyndir sem fælust í nýrri þjónustu við ferðamenn í borginni. Náttúran.is lagði til að Reykjavíkurborg kostaði þróun græns korts fyrir borgina og myndi birta tengla á Green Map Reykjavík af vefsetrum á vegum borgarinnar. Grænt Reykjavíkurkort/Green Map Reykjavík var eitt af sjö verkefnum sem hlaut viðurkenningu. Fyrsti tengillinn var af vef Höfðuborgarstofu visitreykjavik.is á ensku útgáfu vefkortsins Green Map Reykjavík og er hugsaður til að hvetja erlenda ferðamenn til að nýta sér grænu kostina í borginni. Reykjavíkurborg styrkti grænkortaverkefnið haustið 2010 og aftur sumarið 2011 er prentúgáfur Græna Reykjavíkurkortsins voru gefnar út.

Náttúran.is vinnur Grænt Reykjavíkurkort/Green Map Reykjavík í samvinnu við Green Map System® og Land- og ferðamálafræðistofu Verkfræði og Náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands.

Í byrjun árs 2012 varð Höfuðborgarstofa við umsókn Náttúrunnar um styrk til þróunar Græns Íslandskorts fyrir snjallsíma og spjaldtölvur.

Náttúran.is þakkar kærlega fyrir stuðninginn!


nánar

Guðrún Arndís Tryggvadóttir
20. mars 2012 15:22
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Deildu með vinum

Umhverfisráðuneytið - styrkir Náttúruna

Umhverfisráðuneytið merki 300x300p

Vorið 2006 fékk verkefnið styrk frá Umhverfisráðuneytinu. Umhverfisráðuneytið styrkti Náttúruna ennfremur við opnun vefsins og tók þátt í kynningarátaki. Sjá vef umhverfisráðuneytisins.

Vorið 2009 fékk Náttúran.is síðan styrk frá Umhverfisráðuneytinu til áframhaldandi þróunar Græna Íslandskortsins.

Umhverfisráðuneytið styrkti prentun Græna Reykjavíkurkortsins er það kom út í fyrst sinn haustið 2010 og aftur þegar það kom út árið 2011. Náttúran.is vinnur Græna Íslandskortið í samvinnu við Green Map System® og Land- og ferðamálafræðistofu Verkfræði og Náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands.

Í byrjun árs 2012 varð Umhverfisráðuneytið við umsókn Náttúrunnar um styrk til þróunar grænna appa fyrir snjallsíma og spjaldtölvur, en styrkurinn er framlag á fjárlögum ríkisins sem áður var veitt beint af Alþingi.

Náttúran.is þakkar kærlega fyrir stuðninginn!


nánar

Guðrún Arndís Tryggvadóttir
4. mars 2012 16:22
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Deildu með vinum

Sorpa - styrkir Náttúruna

Í byrjun árs 2012 sóttu forsvarsmenn Náttúrunnar um styrk til Sorpu bs. til að standa straum af kostnaði við þróun Endurvinnslukorts-apps fyrir snjallsíma og spjaldtölvur en það verður framhald af Endurvinnslukorti Náttúrunnar hér á vefnum.

Endurvinnslukorts-appið mun sýna móttökustaði endurvinnanlegs sorps á öllu landinu og fræða almenning um endurvinnslumál almennt.

Náttúran.is þakkar kærlega fyrir stuðninginn.


nánar

Guðrún Arndís Tryggvadóttir
4. mars 2012 14:22
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Deildu með vinum

Landsbankinn - styrkir Náttúruna

 

Landsbankinn auglýsti styrki til umhverfismála og náttúruverndar í lok árs 2011 og sótti Náttúran um að fá styrk til að standa straum af kostnaði við þróun Endurvinnslukorts-apps fyrir snjallsíma og spjaldtölvur og fékk úthlutun.

Endurvinnslukorts-appið mun sýna móttökustaði endurvinnanlegs sorps á öllu landinu og fræða almenning um endurvinnslumál almennt.

Náttúran.is þakkar kærlega fyrir stuðninginn.


nánar

Guðrún Arndís Tryggvadóttir
15. janúar 2012 11:22
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Deildu með vinum
12345

2005   2006   2007   2008   2009   2010   2011   2012  
jan   feb   mar   apr   maí  

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Nýleg orð í belg

Eldhúsið - Hreinlætisvörur
Sæl, með sítrónusafa!
Guðrún Tryggvadóttir 17. 05. 2012 00:29:
Eldhúsið - Hreinlætisvörur
Hvernig fæ ég glerglös og aðrar glervörur (t.d. kristal) til að verða glansandi (með náttúrulegum ...
AP 16. 05. 2012 23:42:
Gleymdu klórnum og öðrum ónáttúrulegum hreinsiefnum!
Bórax hefur fengist í Handverkshúsinu í Bolholti í Reykjavík (notað til að hreinsa silfur og ...
Auður Páls 16. 05. 2012 23:39:
Græðgin í auðlindir landsins
Ein stór spurning varðandi leyfisveitingu UST á útiræktun (og almenna ræktun, innanhús líka þvæi ekki ...
Dominique 13. 05. 2012 12:41:
Ráðstefna um erfðabreytta ræktun, sleppingu og dreifingu
Spurning hvort fólk sem hefur kynnt sér neikvæðu hlíðar af erfðatækni ættu að fá að ...
Morten Lange 12. 05. 2012 02:03:
Seljum Ísland hvað sem það kostar
Einar Benediktsson um Kínamál: http://visir.is/kinamal-/article/2012705099999
Guðrún Tryggvadóttir 9. 05. 2012 10:04:
Fjölmennt á málþingi Landverndar og Eldvatna - samtaka um náttúruvernd í Skaftárhreppi
Við munum þurfa að berjast og berjast. Griðungar stóriðju munu heimta orku án afláts og ...
Árni Gunnarsson 6. 05. 2012 13:18:
Landneminn alaskalúpína
Sæl Gígja. Ef settar eru niður nægilega háar trjáplöntur í lúpínubreiðurnar,þá vaxa þær vel og ...
Eyjólfur Guðmundsson 2. 05. 2012 09:35:
Samtök áhugafólks um umhverfi og vellíðan í burðarliðnum
Nú veit ég ekki. Reyndu t.d. Félag hjúkrunarfræðinga!
Guðrún Tryggvadóttir 1. 05. 2012 12:08:

+ Fleiri ummæli

Fréttir frá: