Húsráð: Skrifstofan

Gluggi Planta Ryksuga Bækur Bækur Raftæki Raftæki Heimurinn Geimurinn Húsgögn Íþróttir Skrifborð Sími Tölva Landið Lýsing Skrifstofan husid_skrifstofan
BendillEf smellt er á hluti birtast nánari upplýsingar

Skrifstofan - Tölva

Tölvur eru nauðsynleg tæki í hverju fyrirtæki og varla fyrirfinnst tölvulaust heimili á Íslandi í dag. Tölvur eru einfaldlega alls staðar og gera allt fyrir alla.

Þó að tölvur séu stórkostleg tæki að flestra mati hefur tölvuframleiðslu geigvænlega neikvæð umhverfisáhrif. Bæði vegna þeirra náttúrauðlinda sem framleiðsla hráefnis í tölvurnar hefur í för með sér, flutnings efnis heimsálva á milli og síðan framleiðsluferlið við gerð tölvunnar sjálfrar en hún orsakar aðra röð af neikvæðum umhverfisáhrifum.

Sem dæmi má nefna að við framleiðslu 32 megabæta tölvukubbs þarf 72 kíló af kemískum efnum, 700 grömm af hreinum gastegundum, 32 kíló af vatni og 1,2 kíló af jarðefnaeldsneyti. Eiturefni úr tölvum geta síðan eftir líftíma þeirra lekið niður í jarðveg og grunnvatn, og ef fólk kemst í snertingu við þau, valda þau skaða á taugakerfi þeirra, innkirtlakerfi, líffærum og geta haft neikvæð áhrif á þroska heilans.

Ef við lítum aðeins á orkunotkun í kringum tölvur þegar þær eru komnar í hendur neytenda lítur dæmið þannig út. Um 9% af orku fyrirtækja fer í að halda tölvunum gangandi. Í Bandaríkjunum eru um 180 milljón tölvur í notkun í dag. Ef við yfirfærum þær tölur á Ísland lætur nærri að tæplega ein talva sé á hvert mannsbarn. Hugsnalega er talan þó enn hærri hér á landi.

Stór hluti eða um 30% af þeirri orku sem tölvur og fylgihlutir nota nýtist ekki í neitt annað en að hita frá sér, oft í óþökk og til ama. Til að minnka neikvæð áhrif af tölvunotkun er ýmislegt hægt að gera. Í fyrsta lagi er ónauðsynlegt að fjárfesta í tölvu sem ekki gerir neitt annað en sú sem fyrir er, s.s. „af hverju að kaupa nýja ef sú gamla nægir fyrir það sem maður þarf að gera“?

Varðandi val á tölvum ræður alltaf mestu hvort að tækið uppfylli tæknilegar þarfir (eða ímyndaðar þarfir) kaupandans. Í náinni framtíð má reikna með því að umhverfisstefna og ábyrgð framleiðanda eigi eftir að eiga stóran þátt í kaupákvörðunum neytenda.

Ef að við neytendur förum fram á að fyrirtæki sýni ábyrgð gera þau það, ef ekki sleppa þau því. Það er því í höndum okkar neytenda hvað fyrirtækin aðhafast í umhverfismálum.

Nokkrir tölvuframleiðendur t.a.m. Fujitsu Siemens hafa umhverfismerkið Svaninn á framleiðslu sinni og tölvurnar eru framleiddar skv. ISO 14001 umhverfisstaðlinum. Tölvur með Svansmerkinu uppfylla strangar kröfur um magn þungmálma, samsetningu plastefna, framleiðsluferli, orkunotkun, möguleika á endurvinnslu o.fl.

Orkumerki segja til um hvort að tölva, prentari eða ljósritunarvél er orkusuga eða ekki. Evrópska orkumerkið , Energy Star eða GEEA label hjálpa okkur að finna sparneytnustu tækin. TCO merking er sænskur umhverfis- og orkustaðall sem er á vegum sænskra stéttarfélaga.

Sjá viðmið fyrir þungmálma.

Sjá myndband um hvernig tövur eru endurunnar þær rata rétt leið inn til endurvinnslu.


nánar

Náttúran er
10. apríl 2012 17:11
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Deildu með vinum
Gluggi Planta Ryksuga Bækur Bækur Raftæki Raftæki Heimurinn Geimurinn Húsgögn Íþróttir Skrifborð Sími Tölva Landið Lýsing Skrifstofan husid_skrifstofan
BendillEf smellt er á hluti birtast nánari upplýsingar

Skrifstofan - Húsgögn

Húsgögn samanstanda af ýmsum efnum bæði úr jurta- og steinaríkin s.s. viði, málmum, gleri, trefjum úr plöntum, steinefnum og úr gerviefnum allskonar. Það eru aðallega þau sem að við þurfum að vera með augun opin gagnvart. Ekki aðeins getur útgufun ákveðinna efna verið heilsuspillandi heldur geta umhverfisáhrif verið geigvænleg. Yfir 100.000 efni eru notuð í allskyns framleiðslu í heiminum í dag, mörg hver hafa ekki verið rannsökuð nægjanlega áður en þau verða hluti framleiðslu. Eins gildir að það sem er meinlaust í ákveðnu magni getur verið skaðlegt í meira magni eða í sambandi við önnur efni.

Ef við tökum húsgögn úr viði sem dæmi, þá skiptir máli út frá umhverfissjónarmiðum að skógurinn hafi verið ræktaður á sjálfbæran hátt. Húsgögn merkt sem Forest Stewardship Council (FSC) eru örugglega ekki úr regnskógarvið heldur úr sjálfbærum skógum. Korkur er talin til þeirra náttúruefna sem er umhverfisvænt, sérstaklega ef hann er endurunnum úr korktöppum. PVC- gólfdúkur getur aftur á móti undir engum kringumstæðum talist heilsusamlegur né umhverfisvænn.

Þegar kaupa á húsgögn í skrifstofuna er ráðlagt að kaupa vandaða og endingargóða vöru. Sem kaupandi hefurðu rétt til að vita hvaðan efnin sem skrifstofuhúsgögnin eru gerð úr eru fengin og hvernig og hvar vinnsla fór fram. Athugaðu að áklæðið getur innihaldið eiturefni svo og leðurlíki sem getur innihaldið PVC. Það er ekki dónalegt að spyrja spurninga í verlsunum. Til að ná fram breytingum á framboði verða neytendur að byrja á að spyrja spurninga og setja fram kröfur, öðruvísi gerist ekkert.

Sjá nánar um hættuleg efni og tilbúin efni.


nánar

Náttúran er
16. febrúar 2012 16:15
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Deildu með vinum
Gluggi Planta Ryksuga Bækur Bækur Raftæki Raftæki Heimurinn Geimurinn Húsgögn Íþróttir Skrifborð Sími Tölva Landið Lýsing Skrifstofan husid_skrifstofan
BendillEf smellt er á hluti birtast nánari upplýsingar

Skrifstofan - Sími

Síminn er eitt mikilvægasta hjálpartæki mannsins. Nú eru komnir á markaðinn farsímar sem eru knúnir sólarrafhlöðum og framýróun á farsímamarkaðnum er hröð. Mikilvægt er að velja síma sem hentar manni. Óþarfi er að kaupa síma með möguleikum sem maður kemur aldrei til með að nota.

Ódýrir símar frá viðurkenndum framleiðendum geta verið jafn góðir og rándýrir símar. Spurningin er alltaf á hverju þú þarft að halda.

Mikilvægt er að koma símunum í endurvinnslu eftir notkun, og gefa öðrum gamla farsímann, sé hann enný á í lagi. Endurnotkun og endurvinnsla eru hér lykilatriði.

Einnig verður að gæta þess að hlaða ekki símana lengur en nauðsyn krefur (láta þá ekki liggja dögum saman í hleðslu). Slíkt sóar rafmagni.

Áður en þú kaupir þér nýjan síma er ráðlegt að athuga hvort að þú þurfir í raun og veru á nýjum sima að halda. Sé eitthvað að rafhlöðunni, má einfaldlega skipta um hana. Þá verður síminn sem nýr.

Það eru einnig til símar með stórum tökkum fyrir sjónskerta og símar með hækkuðum tóni fyrir heyrnardaufa. Allt slíkt þarf að athuga þegar aldurinn færist yfir.

Ekki er æskilegt að mjög ung börn séu með farsíma, nema þá leikfangasíma.

Hvað geislun frá farsímum varðar eru til farsímar sem merktir eru TCO 01 sem þýðir að þeir gefa frá sér minni geislun.


nánar

Náttúran er
7. febrúar 2012 08:12
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Deildu með vinum
Gluggi Planta Ryksuga Bækur Bækur Raftæki Raftæki Heimurinn Geimurinn Húsgögn Íþróttir Skrifborð Sími Tölva Landið Lýsing Skrifstofan husid_skrifstofan
BendillEf smellt er á hluti birtast nánari upplýsingar

Skrifstofan - Raftæki

Framleiðsla á einföldustu raftækjum hefur gríðarlega neikvæð umhverfisáhrif. Þess vegna keppast framleiðendur víða um heim nú um að sýna lit og minnka umhverfisáhrif framleiðslu sinnar. En ekki taka allir þátt í því og bíða þangað til að fyrirskipanir berast t.d. frá ESB sem þvinga þá til að minnka umhverfisáhrifin. Við getum tekið þátt í því að „umhverfisvæni verði markaðsforskot“ með því að velja einfaldlega frekar að versla við umhverfisvæna framleiðendur og velja frekar vörur sem bera umhverfisvottun.

Ýmis spilliefni og krabbameinsvaldandi efni, t.a.m. kadmíum og kvikasilfur geta verið mjög skaðleg fyrir umhverfið. Þess vegna er líka mikilvægt að gömlum tækjum sé ekki bara hent í ruslið heldur komið í endurvinnslu.

Orkunotkun tækja er skilgreind með orkumerkjum s.s. Energy Star og Evrópska orkumerkinu. Þú getur kynnt þér orkunotkun tækisins með því að lesa upplýsingar sem oft má finna á tækinu eða nota þar til gerðum mæli. Þannig færðu fullvissu um orkunotkun hvers tækis fyrir sig og getur reiknað út hvað það kostar umhverfið og budduna þína á ári.

Um 10% raforkunotkunar heimilistækja fer oft á tíðum í svokallaða biðstöðu eða "Stand by" notkun. Hafa ber í huga að í biðstöðu eyða rafmagnstæki orku án notkunar. Tæki í biðstöðu skila engu til notenda nema hærri rafmagnsreikningi. Biðstaða tækja er oft kölluð rafmagnsleki enda seytlar hægt og bítandi út raforka engum til gagns. Auðveldasta leiðin til að minnka biðstöðu-notkun er að slökkva alveg á tækjum og helst að taka úr sambandi.


nánar

Náttúran er
12. janúar 2012 11:03
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Deildu með vinum
Gluggi Planta Ryksuga Bækur Bækur Raftæki Raftæki Heimurinn Geimurinn Húsgögn Íþróttir Skrifborð Sími Tölva Landið Lýsing Skrifstofan husid_skrifstofan
BendillEf smellt er á hluti birtast nánari upplýsingar

Skrifstofan - Sjónauki

Ítalski stjörnufræðingurinn Galileo Galilei var einna fyrstur manna til þess að nota sjónauka til að skoða sólkerfið. Hann uppgötvaði hin fjögur stærstu tungl Júpíters og ennfremur uppgötvaði hann að tunglin snérust í kringum Júpíter en ekki jörðina, en sú uppgötvun markaði tímamót innan stjörnufræðinnar. Síðan hafa merkir stjörnufræðingar notað sjónauka til að rannsaka alheiminn, og  önnur stór uppgötvun varð þegar Edwin Hubble uppgötvaði með hjálp sjónaukans og aðstoðarmanns síns að alheimurinn er að þenjast út.

Sjónaukinn er aðalhjálpartæki stjörnufræðinga í dag, og sífellt eru sendir stærri og fullkomnari sjónaukar á braut um jörðu. Með hjálp sjónaukans hafa stjörnufræðingar uppgötvað að alheimurinn þenst sífellt hraðar og hraðar út, uppgötvun sem er enn ekki að fullu útskýrð og sem kom mörgum a óvart. Alheimurinn virðist vera enn stórkostlegri og furðulegri en við mennirnir höfum nokkru sinni getað ímyndað okkur til þessa. Hann heldur áfram að koma okkur á óvart.


nánar

Náttúran er
1. janúar 2012 21:19
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Deildu með vinum
1234

2005   2006   2007   2008   2009   2010   2011   2012  
jan   feb   mar   apr   maí  

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Nýleg orð í belg

Eldhúsið - Hreinlætisvörur
Sæl, með sítrónusafa!
Guðrún Tryggvadóttir 17. 05. 2012 00:29:
Eldhúsið - Hreinlætisvörur
Hvernig fæ ég glerglös og aðrar glervörur (t.d. kristal) til að verða glansandi (með náttúrulegum ...
AP 16. 05. 2012 23:42:
Gleymdu klórnum og öðrum ónáttúrulegum hreinsiefnum!
Bórax hefur fengist í Handverkshúsinu í Bolholti í Reykjavík (notað til að hreinsa silfur og ...
Auður Páls 16. 05. 2012 23:39:
Græðgin í auðlindir landsins
Ein stór spurning varðandi leyfisveitingu UST á útiræktun (og almenna ræktun, innanhús líka þvæi ekki ...
Dominique 13. 05. 2012 12:41:
Ráðstefna um erfðabreytta ræktun, sleppingu og dreifingu
Spurning hvort fólk sem hefur kynnt sér neikvæðu hlíðar af erfðatækni ættu að fá að ...
Morten Lange 12. 05. 2012 02:03:
Seljum Ísland hvað sem það kostar
Einar Benediktsson um Kínamál: http://visir.is/kinamal-/article/2012705099999
Guðrún Tryggvadóttir 9. 05. 2012 10:04:
Fjölmennt á málþingi Landverndar og Eldvatna - samtaka um náttúruvernd í Skaftárhreppi
Við munum þurfa að berjast og berjast. Griðungar stóriðju munu heimta orku án afláts og ...
Árni Gunnarsson 6. 05. 2012 13:18:
Landneminn alaskalúpína
Sæl Gígja. Ef settar eru niður nægilega háar trjáplöntur í lúpínubreiðurnar,þá vaxa þær vel og ...
Eyjólfur Guðmundsson 2. 05. 2012 09:35:
Samtök áhugafólks um umhverfi og vellíðan í burðarliðnum
Nú veit ég ekki. Reyndu t.d. Félag hjúkrunarfræðinga!
Guðrún Tryggvadóttir 1. 05. 2012 12:08:

+ Fleiri ummæli

Fréttir frá: