Samgöngur: Viti

Viti

Á Græna kortinu er hægt að fá upplýsingar um vita.

Skilgreiningin sem við flokkum eftir er eftirfarandi:
Allir vitar á Íslandi. Viti er turn, bygging eða mannvirki sem er hannað til að gefa frá sér ljós með kerfi lampa og linsa, ætlað til hjálpar sjófarendum.

Sjá nánar um vita hér á Græna kortinu undir flokknum „Viti".

Grafík: Myndtákn Green Map® System flokksins „Viti“, hannað af Guðrúnu A. Tryggvadóttur sem tillegg til Green Map kerfisins.


nánar

Náttúran er
30. apríl 2012 12:49
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Deildu með vinum
Vegagerð Póstur Húsdýr Gróður Eldsneyti Almenningssamgöngur Samgöngur husid_samgongur
BendillEf smellt er á hluti birtast nánari upplýsingar

Samgöngur - Eldsneyti

Bensín og dísel, útbreiddustu eldsneytisgjafar heimsins, losa mikið magn koltvísýrings og það er því mikilvægt að finna og þróa nýja orkugjafa sem hafa ekki eins neikvæð umhverfisáhrif. Til fjölda ára hefur verið unnið að þróun sparneytnari dísel- og bensínbíla, tvinn-bíla (ganga fyrir eldsneyti og rafmagni), metanbíla, vetnisbíla og rafbíla því baráttan stendur um næstu kynslóð kaupenda, þeirra sem eiga eftir að krefjast sparneytnari, hagkvæmari og minna umhverfisspillandi bíla.

Orkuskipti
Að skipta um orku í samgöngum er ekki auðvelt mál og fyrir utan framleiðslu og dreifingu á orkunni þarf að skoða aðlögun að þeim mótorum sem fyrir eru. Best er ef ný orkutegund passi fullkomlega á eldri farartæki, hér má nefna lífdísel og ethanól.  Lakari kostur er ef ný orka kallar á miklar breytingar á eldri búnaði. Þar má nefna t.d. metan sem krefst stórra gaskúta með tilheyrandi kostnaði og rýrnunar á notagildi bílsins. Metanið er á mörkunum að sleppa inn sem valkostur fyrir gamla bíla en auðveldari fyrir nýja bíla því þá má hanna bílinn með tilliti til gaskútanna.  Versti kosturinn er þegar skipt er í nýja orku með nýjum vélum.  Hér má nefna vetni og rafmagn. Svo miklar breytingar verða ekki framkvæmdar nema á áratuga skeiði og eingöngu ef nýja orkan og nýju mótorarnir eru mun ódýrari en það sem fyrir var.

Lífdísel/Biodísel. Lífdísel er sá lífræni umhverfisvæni orkugjafi sem á mesta möguleika að verða að raunveruleika í dag. Lífdísel er framleiddur úr jurtaolíu eða dýrafitu en mestar vonir eru bundnar við framleiðslu úr þörungum.
Tilraunaverkefni hafa verið í gangi á vegum Siglingastofnunar með ræktun á repju til framleiðslu lífdísels hér á landi en N1 hóf innflutning á Biodíseli árið 2007 og afgreiðir það frá þremur þjónustustöðvum þ.e. Hringbraut, Skógarseli og Reykjavíkurvegi. Kosturinn við lífdísel er að það má nota á hvaða díselbifreið sem er. Praktísk vandamál setja þó enn sem komið er strik í reikninginn en jaft og þétt lærist á vandamálin og lausnir finnast.

Ethanól er framleitt með gerjun á lífmassa.  Lífethanól E85 er fáanlegt á eldsneytisstöð Olís við Álfheima. Brimborg vann að því að koma ethanól bílum á kortið hérlendis. Ethanól hefur verið gerjað úr sykurreyr eða korni en unnið er að því hörðum höndum að vinna ethanól úr sellulósa.

Metan er endurnýjanlegur orkugjafi og verður til við rotnun lífmassa, t.d. lífrænn úrgangur á sorphaugum. Vonir standa til að metan verði meira notað á farartæki í framtíðinni því það að aka á metani er í tvennum skilningi umhverfisvænt. Í fyrsta lagi gefur brennslan frá sér minna af koltvísýringi miðað við bensín eða dísel og í öðru lagi er metangasið sem slíkt verulega slæm gróðurhúsalofttegund. Það er því betra að nota metangasið til að knýja bíla og spara þannig innflutt bensín því sorphauga-metan er ávallt brennt af hvort sem er.

Metan hf. hefur nú um nokkurra ára skeið framleitt metangas en enn sem komið er eru aðeins örfáar áfyllingarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu sem virkar ekki nógu hvetjandi fyrir fólk til að kaupa sér metanbíl. Vonir standa þó til að úr því verði bætt á næstu árum því veruleg aukning er að verða á framboði metanbifreiða. Vert er að fylgjast vel með hvaða metanbílar eru í boði því að bílaumboðin eru nú öll að taka við sér og grænvæðast. Þar til fyrir stuttu síðan var varla hægt að fá nokkurn umboðsaðila til að selja sér metanbíl svo þróunin er öll í rétta átt.

Hægt er að umbreyta venjulegum bílum í metanbíla en Borgarholtsskóli tók af skarið árið 2007 og tók breytingarferlið inn á kennsluskrá bíliðngreina.Vélamiðstöðin ehf., MeGas ehf. og Einn grænn ehf. bjóða upp á metanbreytingar í dag og fer bílum snarfjölgandi sem aka um á metani.

Metangasbílar eru yfirleitt tvíorkubílar, með þrýstikút fyrir gas og annan bensíntank. Þannig er óhætt að fara í langkeyrslu og nota bensín þar sem ekki er aðgangur að gasi. Misjafnt er eftir gerðum hvort bensíntankurinn sé fullvaxinn (50-70 lítrar) eða bara neyðartankur (15 lítrar).

Vetni hefur tiltölulega lítil umhverfisáhrif ef orkan í vetnið kemur úr vatns-, vind- eða sólarorku, nema auðvitað ef umhverfisáhrif virkjana að orkunni er mikil (sbr. Kárahnjúkavirkjun). Vandamálið með vetnisbílana er þó að þróun þeirra er enn í fullum gangi og ekki útséð um hver árangurinn verður né hvenær hægt verði að framleiða vetnisbíla í magni sem skiptir einhverju máli. Ísland skipaði sér á tímabili sess sem vetnisþjóð og töluverðu fé var varið til verkefna sem tengdust þróun og kynningu á vetnishugmyndinni.

Íslensk NýOrka hf er í framvarðasveit fyrir vetnisrannsóknir hérlendis. Langt er þó í land að vetnisbílar verði raunhæfur kostur fyrir hinn almenna borgara og skiptar skoðanir á því hvort að vetni sé raunhæf lausn þar sem vetni er ekki orka í sjálfu sér heldur orkuberi. Nokkrir vetnisbílar eru nú komnir til landsins í tengslum við verkefnið en bílaleigan Hertz hefur t.a.m. getað boðið upp á vetnisbíla til leigu sem var í fyrsta skipti í heiminum sem almenningi gafst kostur á að leigja vetnisbíla. Rekstur bílanna hefur þó verið erfiðleikum bundinn af ýmsum ástæðum. Ekki síst þeirri að aðeins er ein vetnisáfyllingarstöð á landinu, á Ártúnshöfða í Reykjavík.

EVEN / Northern Lights Energy vinnur nú hörðum höndum að rafbílavæðingu Íslands en rafbílar eru af mörgum taldir vera besta lausnin til framtíðar, ekki síst fyrir Ísland þar sem raforka er unnin á minnna umhverfiskaðlegan hátt hér á landi en víðast hvar í heiminum. Hugsanlega er rafbíllinn draumalausn ef ekki væri fyrir þessu hvimleiðu praktísku vandamál. Til dæmis eru notaðir rare earth málmar í mótorana og stjórnbúnað rafmagnsins.  Það er nauðsynlegt að taka með í dæmið að framleiðslan á þessum málmum er óskaplega sóðaleg.  Mestar vonir eru bundnar við Li-ion rafgeyma sem eru færir um að geyma mikla orku miðað við þyngd.  En hvað eru lithium birgðir jarðar stórar.  Duga þær fyrir bílaflota heimsins? Fyrir Ísland væri það glæsilegt að keyra mengunarlaust og hljóðlaust á rafbílum en þá gleymist kannski skítuga hliðin á framleiðslunni sem við verður aldrei vör við. Það er engin rós án þyrna.

Hefðbundnir bílar
Ef valið stendur milli dísel- eða bensínbíls er vert að hafa í huga að díselbíll eyðir um 25% minna eldsneyti en sambærilegur bensínbíll. Hins vegar myndast um 16% meiri koltvísýringur við bruna á einum lítra af díselolíu en bensíni. Það þýðir að við val á milli tveggja bíla verður díselbíllinn að eyða um 16% minna en bensínbíllinn til að vera sambærilegur varðandi gróðurhúsaloftegundir. Við þetta bætist að díselbílar menga meira af svifögnum og köfnunarefnisoxíðum en bensínbílar þó svo að díselbílar séu ávallt að batna. Sparnaður díselbílanna kemur best í ljós í langkeyrslu, þeir eiga erfiðara með að skila lágri eyðslu á stuttum leiðum.  Sama gildir fyrir bensínbíla, köld bensínvél eyðir mjög miklu þar til hún hefur náð vinnsluhita. Hér ættum við að athuga kosti hreyfilhitara. Bæði er það að vélin er miklu fljótari að ná eðlilegum vinnsluhita, með minni mengun og aukinni sparneytni í för, og svo er farþegarýmið orðið hlýtt og notalegt á augabragði. Ekki slæmt á köldum vetrarmorgni.


nánar

Náttúran er / Einar Einarsson
29. september 2011 12:16
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Deildu með vinum

Vitar Íslands á Græna Íslandskortinu

Sem hluta af þróun Græna Íslandskortsins hefur Náttúran tekið saman yfirlit frá Siglingastofnun yfir alla vita á Íslandi, samtals 110 vita og falla þeir undir yfirflokkinn „Opinber verk/kennileiti“. Vitarnir hafa nú verið skráðar og kortlagðar á Græna kortið hér á vefnum en auk staðsetningar má sjá byggingarár, hæð, ljóshæð og hlutverk og hver rekstaraðili vitans er.

Þó að ekki hafi verið til flokkur fyrir vita undir alþjóðlegu flokkunarkerfi Green Map þótti okkur vitar landsins vera bæði það falleg og mikilvæg mannvirki að þeir verði að vera á kortinu auk þess sem þeir eru það mikilvægir áfangastaðir í náttúru landsins að ekki væri komist hjá því að gerða nýjan flokk sem síðan bætist þá við grænkortaflokka í Green Map kerfinu. Ef þú hefur einhverjar spurningar eða vilt koma á framfæri athugsemdum sem varða þennan flokk þá skrifaðu okkur á nature@nature.is.

Grænkortaflokkurinn Vitar eru skilgreindir á eftirfarandi hátt: „Viti er turn, bygging eða mannvirki sem er hannað til að gefa frá sér ljós með kerfi lampa og linsa, ætlað til hjálpar sjófarendum“.

Sjá flokkinn „Vitar“ á Græna kortinu.

Ljósmynd: Knarrarósviti í Flóa, rétt austan við Stokkseyri. Teiknaður af Axel Sveinssyni, verkfræðingi, eftir hugmynd Guðjóns Samúelssonar, húsameistara ríkisins. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.
Tákn: Vitatákn hannað af Guðrúnu Tryggvdóttur fyrir Græna kortið.


nánar

Guðrún Arndís Tryggvadóttir
18. júlí 2010 14:09
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Deildu með vinum
Vegagerð Póstur Húsdýr Gróður Eldsneyti Almenningssamgöngur Samgöngur husid_samgongur
BendillEf smellt er á hluti birtast nánari upplýsingar

Samgöngur - Sveppir

Sveppir eru dularfullar lífverur, reyndar teljast þeir ekki einu sinni til plönturíkisins heldur eru sérstakt fyrirbrigði í lífríkinu.
Á Íslandi eru nú um 2000 tegundir af sveppum þekktir. Þá eru ekki taldir með rúmlega 700 tegundir sveppa sem eru fléttumyndandi, þ.e. hafa þörunga í þjónustu sinni. Sveppir skiptast í marga flokka, en stærstir eru kólfsveppir og asksveppir.

Til að tína sveppi til matar er nauðsynlegt að afla sér haldgóðra upplýsinga því sumir sveppir eru eitraðir. Eiginlega þarf sveppatínslumaðurinn að komast í andlega snertingu við sveppina og bera virðingu fyrir einstökum eiginleikum þeirra. Sveppir vaxa ekki bara si svona heldur í sambýli við annan gróður.

Sveppir með svampbotni þykja bestir matsveppir hér á landi. Lerki- og furusveppir eru auðfundnastir og áhættuminnstir fyrir byrjendur og auðvelt að þekkja vaxtarstaði þeirra. Þegar nóg er af sveppum má henda stilk og svampbotni og nýta aðeins það besta.

Hægt er að rækta sveppi innanhúss í viðarkössum ef pláss er fyrir hendi. Sveppir innihalda meira af steinefnum en kjöt og innihalda mikið af próteini. Þeir eru því mjög næringarmiklir. Steikið ferska sveppi í smjöri eða hafið í sósur og súpur.


nánar

Náttúran er
26. júní 2007 14:02
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Deildu með vinum
Vegagerð Póstur Húsdýr Gróður Eldsneyti Almenningssamgöngur Samgöngur husid_samgongur
BendillEf smellt er á hluti birtast nánari upplýsingar

Samgöngur - Vegakerfið

Flutningar með skipum, vöruflutningabílum og flugvélum er stór mengunarvaldur. Það er því umhverfsvænna að kaupa frekar það sem ekki þarf að flytja langar leiðir.

Dæmi: Flutningur ávaxtar frá Nýja Sjálandi með flugi til Íslands losar um fimmfalda þyngd hans af koltvíoxíði. Skipaflutningar losa einnig mikið magn koltvíoxíðs auk þess sem olía getur borist út í hafið. Það er því tvímælalaust umhverfisvænast að kaupa þau matvæli sem eru framleidd innanlands, sérstaklega ef þau eru einnig ræktuð með lífrænum aðferðum.


nánar

Náttúran er
26. júní 2007 13:29
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Deildu með vinum
12

2005   2006   2007   2008   2009   2010   2011   2012  
jan   feb   mar   apr   maí  

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Nýleg orð í belg

Eldhúsið - Hreinlætisvörur
Sæl, með sítrónusafa!
Guðrún Tryggvadóttir 17. 05. 2012 00:29:
Eldhúsið - Hreinlætisvörur
Hvernig fæ ég glerglös og aðrar glervörur (t.d. kristal) til að verða glansandi (með náttúrulegum ...
AP 16. 05. 2012 23:42:
Gleymdu klórnum og öðrum ónáttúrulegum hreinsiefnum!
Bórax hefur fengist í Handverkshúsinu í Bolholti í Reykjavík (notað til að hreinsa silfur og ...
Auður Páls 16. 05. 2012 23:39:
Græðgin í auðlindir landsins
Ein stór spurning varðandi leyfisveitingu UST á útiræktun (og almenna ræktun, innanhús líka þvæi ekki ...
Dominique 13. 05. 2012 12:41:
Ráðstefna um erfðabreytta ræktun, sleppingu og dreifingu
Spurning hvort fólk sem hefur kynnt sér neikvæðu hlíðar af erfðatækni ættu að fá að ...
Morten Lange 12. 05. 2012 02:03:
Seljum Ísland hvað sem það kostar
Einar Benediktsson um Kínamál: http://visir.is/kinamal-/article/2012705099999
Guðrún Tryggvadóttir 9. 05. 2012 10:04:
Fjölmennt á málþingi Landverndar og Eldvatna - samtaka um náttúruvernd í Skaftárhreppi
Við munum þurfa að berjast og berjast. Griðungar stóriðju munu heimta orku án afláts og ...
Árni Gunnarsson 6. 05. 2012 13:18:
Landneminn alaskalúpína
Sæl Gígja. Ef settar eru niður nægilega háar trjáplöntur í lúpínubreiðurnar,þá vaxa þær vel og ...
Eyjólfur Guðmundsson 2. 05. 2012 09:35:
Samtök áhugafólks um umhverfi og vellíðan í burðarliðnum
Nú veit ég ekki. Reyndu t.d. Félag hjúkrunarfræðinga!
Guðrún Tryggvadóttir 1. 05. 2012 12:08:

+ Fleiri ummæli

Fréttir frá: