Fréttir

Landvernd stofnar gönguhóp

Landvernd hefur stofnað til gönguhóps í því augnarmiði að styrkja grasrótarstarf samtakanna. Gönguhópurinn er hugsaður sem óformlegur hópur fólks sem deilir því áhugamáli að ganga sér til ánægju og yndisauka. Allir eru velkomnir í göngur, félagsmenn sem og aðrir. Ekki er boðið upp á skipulagða leiðsögn í þessum göngum, en allir hvattir til að deila fróðleik sem þeir/þær búa yfir um viðkomandi svæði.

Fyrsta gangan verður í Viðey núna á laugardaginn, 25. febrúar. Hist er við Viðeyjarferjuna kl. 13:00 (brottför 13:15) og farið verður tilbaka kl. 16:30 (einnig möguleiki á brottför 15:30 fyrir þá sem eru að flýta sér). Gengið verður um eyjuna og hægt að kaupa sér kaffi og með því í Viðeyjarstofu. Það kostar 1.000,- í ferjuna og 500 fyrir börn. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.

Áætlun vetrarins og fram á vor er að finna hér að neðan. Nánari upplýsingar um hverja ferð verða á facebooksíðu Landverndar og heimasíðu samtakanna landvernd.is þegar nær dregur ferðum.

Þrír sjálfboðaliðar hafa tekið að sér skipulagningu gönguhóps Landverndar. Það eru Auður Alfífa Ketilsdóttir (alfifa@gmail.com), Hafdís Hanna Ægisdóttir (hafdishanna@gmail.com) og Jóna Guðný Eyjólfsdóttir (jona.g.eyjolfsdottir@reykjavik.is). Ef spurningar vakna má hafa samband við þær.

Göngur vetrarins (innan sviga er skammstöfun sjálfboðaliða sem sjá um skipulagningu gangnanna):

25. feb, kl. 13:15: Viðey (AAK). Hittast við Viðeyjarferju kl. 13.
10. mar, kl. 13: Helgafell (JGE). Hittast á bílaplani við uppgöngu kl. 13.
26. apr: Fella- og Hólahverfi í Reykjavík (GIG). Nánar síðar.
16. maí: Reykjanesskaginn (HHÆ). Nánar síðar.
30. maí: Grensdalur/Reykjadalur (JGE). Nánar síðar.

Meginmarkmiðið með Gönguhópi Landverndar er að skapa skemmtilegan vettvang fyrir fólk sem gjarnan vill fara með öðrum í gönguferðir og þiggja og veita fróðleik eftir föngum. Gönguferðirnar eru ekki skipulagðar sem ítarlegar fræðslugöngur með leiðsögumanni, heldur er hugmyndin fyrst og fremst að koma sér í skóna og út fyrir hússins dyr í góðum félagsskap. Allir sem ætla sér að mæta í göngu eru hvattir til að deila með öðrum vitneskju sem þau hafa um þau svæði sem gengið er á.

Göngurnar eru öllum að kostnaðarlausu, nema fólk þarf sjálft að koma sér á þann stað sem gengið er á. Venjulega verður sameinast í bíla ef för er heitið langt. Fólk er hvatt til að nýta sér almenningssamgöngur þar sem því verður við komið til að draga úr umhverfisáhrifum ferðanna. Allir ganga upp á sína eigin ábyrgð.




Tengdir viðburðir


Gönguhópur Landverndar gengur í Fella- og Hólahverfi
26. apr. 2012 12:38

Gönguhópur Landverndar gengur á Helgafell
10. mar. 2012 13:00

Gönguhópur Landverndar gengur í Viðey
25. feb. 2012 13:15


Einkunn

Deildu með vinum
Flokkar:
0 orð í belg

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Tengt lesefni:

Ferðaþjónusta: Gönguferðir [5]

Félög og samtök: Leiðandi umhverfissamtök [46]

Félög og samtök: Náttúruvernd [403]

Landið: Gönguleiðir [9]

Landið: Útivera [59]

Útivera: Náttúruganga [10]

Viðburðir: Útivera [53]

Grænar síður:

Gönguferðir [4]

Leiðandi umhverfissamtök [2]

Náttúruvernd [35]

Gönguleiðir [17]

Útivera [18]

Náttúruganga [4]

Útivera [3]

Nýleg orð í belg

Eldhúsið - Hreinlætisvörur
Sæl, með sítrónusafa!
Guðrún Tryggvadóttir 17. 05. 2012 00:29:
Eldhúsið - Hreinlætisvörur
Hvernig fæ ég glerglös og aðrar glervörur (t.d. kristal) til að verða glansandi (með náttúrulegum ...
AP 16. 05. 2012 23:42:
Gleymdu klórnum og öðrum ónáttúrulegum hreinsiefnum!
Bórax hefur fengist í Handverkshúsinu í Bolholti í Reykjavík (notað til að hreinsa silfur og ...
Auður Páls 16. 05. 2012 23:39:
Græðgin í auðlindir landsins
Ein stór spurning varðandi leyfisveitingu UST á útiræktun (og almenna ræktun, innanhús líka þvæi ekki ...
Dominique 13. 05. 2012 12:41:
Ráðstefna um erfðabreytta ræktun, sleppingu og dreifingu
Spurning hvort fólk sem hefur kynnt sér neikvæðu hlíðar af erfðatækni ættu að fá að ...
Morten Lange 12. 05. 2012 02:03:
Seljum Ísland hvað sem það kostar
Einar Benediktsson um Kínamál: http://visir.is/kinamal-/article/2012705099999
Guðrún Tryggvadóttir 9. 05. 2012 10:04:
Fjölmennt á málþingi Landverndar og Eldvatna - samtaka um náttúruvernd í Skaftárhreppi
Við munum þurfa að berjast og berjast. Griðungar stóriðju munu heimta orku án afláts og ...
Árni Gunnarsson 6. 05. 2012 13:18:
Landneminn alaskalúpína
Sæl Gígja. Ef settar eru niður nægilega háar trjáplöntur í lúpínubreiðurnar,þá vaxa þær vel og ...
Eyjólfur Guðmundsson 2. 05. 2012 09:35:
Samtök áhugafólks um umhverfi og vellíðan í burðarliðnum
Nú veit ég ekki. Reyndu t.d. Félag hjúkrunarfræðinga!
Guðrún Tryggvadóttir 1. 05. 2012 12:08:

Fréttir frá: