:
Málþing um Árósasamninginn 30. maí
Umhverfisráðuneytið stendur fyrir málþingi um Árósasamninginn, þar sem fjallað verður um upplýsingagjöf og samráð í umhverfismálum og aðkomu almennings, félagasamtaka og hagsmunaaðila að ákvarðanatöku í umhverfismálum. Málþingið fer fram miðvikudaginn 30. maí næstkomandi í Þjóðminjasafninu frá kl. 13:00 til 16:30. Það er öllum opið og er aðgangur ókeypis.
Alþingi samþykkti síðastliðið haust fullgildingu Árósasamningsins og tóku lög þar að lútandi gildi 1. janúar sl. Árósasamningurinn var gerður í Árósum í Danmörku árið 1998 og var Ísland meðal þeirra 38 ríkja sem undirrituðu hann.
Samningurinn tengir saman umhverfismál og mannréttindi þar sem hann byggist á því að fullnægjandi verndun umhverfisins sé nauðsynleg fyrir velferð mannsins og það að geta notið grundvallarmannréttinda. Samningurinn leggur skyldur á aðildarríkin að tryggja almenningi að geta haft áhrif á ákvarðanatöku sem snertir umhverfið.
Á málþinginu verður fjallað um þýðingu og áhrif samningsins og hverju hann breytir fyrir stjórnvöld, almenning, félagasamtök og hagsmunaaðila. Fjallað verður um samráð við gerð skipulags og mat á umhverfisáhrifum, mikilvægi samráðs og upplýsinga til almennings. Þá verður fjallað um viðhorf atvinnulífs og félagasamtaka á sviði útivistar og umhverfisverndar til samningsins.
Dagskrá:
- Ávarp - Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra
- Árósasamningurinn, þýðing og áhrif - Sigríður Auður Arnardóttir, skrifstofustjóri í umhverfisráðuneytinu
- Hverju breytir Árósamningurinn? - Róbert R. Spanó, prófessor og forseti lagadeildar Háskóla Íslands
- Samráð við gerð skipulags og mat á umhverfisáhrifum - Stefán Thors, forstjóri Skipulagsstofnunar
- Mikilvægi samráðs og miðlunar upplýsinga - Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar
- Kaffihlé
- Árósasamningurinn og atvinnulífið - Bryndís Skúladóttir, forstöðumaður umhverfismála hjá Samtökum iðnaðarins
- Hvernig getur Árósasamningurinn nýst náttúru- og umhverfisvernd? - Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar
- Markmið og hlutverk útivistarsamtaka - Ólafur Örn Haraldsson, forseti Ferðafélags Íslands
- Umræður
- Samantekt og ráðstefnuslit
Fundarstjóri er Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri í umhverfisráðuneytinu.
nánar
Umhverfisráðuneytið
18. maí 2012 20:44
Uppruni: Umhverfisráðuneytið
Einkunn

Ef smellt er á hluti birtast nánari upplýsingar
Svefnherbergið - Hurð
Vistvænar byggingar er hugtak sem enn er ekki alveg komið inn í íslenska tungu. Í raun er átt við að bygging þurfi að vera heilbrigð þ.e. að hún skaði ekki heilsu íbúanna, gangi ekki of nærri auðlindum jarðar og hafi ekki neikvæð áhrif á náttúruna á líftíma sínum og eftir. Það er því margt sem að spilar þar inní en á endanum er það þekking og heilbrigð skynsemi sem ættu að hjálpa okkur að taka ákvarðanir um hvernig við viljum byggja, innan um hvaða efni við treystum okkur og börnum okkar til að eyða bróðurparti lífsins.
Til langs tíma, sérstaklega á 20. öldinni, voru notuð byggingarefni sem í dag flokkast sem hættuleg heilsunni. Dæmi eru geislavirk steypuefni, asbest sem getur valdið lungnakrabba, þéttiefni sem innihélt PCB (polychlorinated biphenyls), þungmálma og viðbótarefni. Nútíma enduruppbygging gengur meðal annars út á það að fjarlægja kerfisbundið þessi hættulegu efni. Sjá nánar um hættuleg efni og tilbúin efni.
Vottanir viðurkenndra aðila eru staðfesting á því að byggingarefnið sé unnið og þess aflað á forsendum sjáfbærrar þróunar. T.d. er vottun frá Forest Stewardship Council (FSC) merki þess að hurð sé örugglega ekki úr regnskógarvið heldur úr sjálfbærum skógum og Svansmerking, Evrópublómið og önnur viðurkennd umhverfismerki gefa til kynna að um umhverfisábyrga framleiðslu er að ræða. Hurð úr PVC væri aftur á móti sannarlega óheilsusamleg og óumhverfisvæn. Um málninguna á hurðinni gildir það sama. Beri hún umhverfisvottun getum við verið örugg annars ekki.
nánar
Náttúran er
18. maí 2012 13:20
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Strendur og smábátahafnir
Á Græna kortinu er hægt að fá upplýsingar um strendur og smábátahafnir sem hlotið hafa Bláfánann (Blue Flag).
Skilgreiningin sem við flokkum eftir er eftirfarandi:
Strendur og hafnir sem hlotið hafa Bláfánann (Blue Flag), umhverfismerki sem úthlutað er þeim smábátahöfnum og baðströndum sem uppfylla ákveðin skilyrði sem miða að því að auka umhverfisgæði og umhverfisvitund gesta staðanna.
Grafík: Myndtákn Green Map® System flokksins „Strendur og smábátahafnir“.
nánar
Náttúran er
18. maí 2012 10:34
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Alþjóðleg ráðstefna um sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda
Alþjóðleg ráðstefna um sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda „Soils, Governance and Society“ verður haldin mánudaginn 4. júní 2012, kl. 8:30–16:00, á Radisson BLU Hótel Sögu, Hagatorgi (Katla, norður inngangur, 2. hæð).
Ráðstefnan fer fram á ensku, er öllum opin og aðgangur er ókeypis.Landgræðsla ríkisins, The University of New England (Ástralía) og The Pennsylvania State University (Bandaríkin) munu í samstarfi við Landgræðsluskóla Sameinuðu þjóðanna og The Global Soil Partnership halda alþjóðlega ráðstefnu um leiðir til að auka árangur í verndun og nýtingu náttúruauðlinda. Jarðvegseyðing og önnur hnignun vistkerfa er eitt af stærstu vandamálum heimsins og ógnar stoðum sjálfbærrar þróunar. Brýnt er að snúa þessari þróun við með því að stuðla að skilvirkari starfsháttum í umhverfisvernd.
Ráðstefnan er þverfagleg og er ætluð sem vettvangur skoðanaskipta milli vísindasamfélags, stjórnsýslu og framkvæmdaaðila. Meðal þátttakenda verða m.a. leiðandi vísindamenn á fagsviðum laga, hagfræði, hegðunar, félagsvísinda, náttúruvísinda, menntavísinda, stefnumörkunar og stjórnmála.
Fyrir hádegi þann 4. júní verður fjallað um hvers vegna nauðsyn er á róttækri breytingu á því hvernig nýtingu náttúruauðlinda er stjórnað og leiðir til að auka árangur. Fundurinn eftir hádegi verður meira í formi vinnufundar um það hvaða lærdóm má draga af rannsóknum og reynslu við mótun nýrra starfshátta í umhverfisvernd.
Ráðstefnan er undanfari vinnufundar um þetta efni sem stendur til 8. júní.Í viðhengi með þessum tölvupósti er dagskrá ráðstefnunar en einnig er hægt að nálgast dagskrána og upplýsingar um framsögumenn á http://soilgovernance.land.is/conference.
Tilkynna þarf þátttöku á http://soilgovernance.land.is/registration.
Ljósmynd: Guðrún A. Tryggvadóttir.
nánar
Landgræðsla ríkisins
18. maí 2012 09:01
Uppruni: Landgræðsla ríkisins
Einkunn
Endurvinnslukortið í snjallsíma og spjaldtölvur
Náttúran hefur gert forrit fyrir snjallsíma og spjaldtölvur sem á að einfalda flókinn heim endurvinnlu á Íslandi. Þar má finna lista og upplýsingar um alla flokka endurvinnslu hér á landi og hvar móttöku þeirra er að finna. Einnig er reynt að upplýsa, innan þeirra marka sem hægt er, hvenær viðkomandi stöðvar eru opnar.
Persónuvernd
Forritið safnar engum gögnum um notanda en verður að fá leyfi til að vita staðsetningu viðkomandi ef það á að teikna leiðarvísi að valinni stöð. Kortin koma frá Google og gilda reglur og skilmálar Google um þau.
nánar
Einar Bergmundur
17. maí 2012 15:15
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal
| sun | mán | þri | mið | fim | fös | lau | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 29 | 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | 05 | maí |
| 06 | 07 | 08 | 09 | 10 | 11 | 12 | maí |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | maí |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | maí |
| 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 01 | 02 | jún |
| 03 | 04 | 05 | 06 | 07 | 08 | 09 | jún |
| 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | jún |
| 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | jún |
| 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | jún |









